Vondur fréttadagur
23.9.2008 | 19:39
en ágætur dagur persónulega fyrir mig. Vinnan mun skárri en í gær og kallarnir í nokkuð góðu skapi. Einn þeirra kvartaði yfir því að þjóðþekktur maður hefði farið yfir á rauðu (leigubílstjórar gera aldrei svoleiðis ) ég sagði manninum að hætta þessu röfli. Maðurinn sem hann sá hefði einfaldlega keypt gatnamótin ef hann hefði fengið sekt !
Fréttir dagsins eru heldur nöturlegar, hugurinn leitar óhjákvæmilega sterkt til aðstandenda ungu konunnar í Dómínikanska lýðveldinu. Ég veit hversu hræðilega erfið sporin þeirra eru.
Svo hef ég fylgst með harakiri Frjálslynda Flokksins. Mér sýnist nokkuð ljóst að þessi fjörbrot séu dauðateygjur þessa smáflokks. Hann á ekkert líf fyrir höndum ef samstaðan innan flokksins ætlar að vera svona.
Ég var svakalega klár í gær, vann gizkið hjá Hrönn Ég er alveg sannfærð um að Anna hefur verið utan við sig í smástund fyrst ég náði svo góðu heilasambandi, kannski var hún sobbnuð bara.
Athugasemdir
Það er eins gott að láta ekki ástandið í peningamálum þjóðarbússins hafa áhrif á andlega heilsu. Mér finnst þér takast það ágætlega.
Jenný Anna Baldursdóttir, 23.9.2008 kl. 20:25
Þú kemur svo fagnandi í afmælið!
Hrönn Sigurðardóttir, 23.9.2008 kl. 20:26
Nú....... var ég ekki að kommenta ?
Þá reyni ég aftur; Úbbosí, sagði ég. Þá veit alþjóð að ég hugsa ekki á kvöldin.
Sjáum hvort mér tekst að senda þetta skammlaust.
Og einn jákvæður kaddl með...
Anna Einarsdóttir, 23.9.2008 kl. 20:35
Takk fyrir mig elsku Ragga mín og ljúfar kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.9.2008 kl. 20:35
Hrönn er það dagur D-Rekans ?
Já Jenný við förum ekki að láta vitlausa krónu setja okkur á bömmer. Við spörum bara og brosum út í annað....(grátum hinumegin en það er önnur saga)
Ragnheiður , 23.9.2008 kl. 20:36
Linda mín elskuleg , takk sömuleiðis.
Anna sem betur fer, ég náði örsambandi við þinn heilapart, ekki gat ég stólað á Hrönn. Hún smíðaði gátuna hehehe...hefði nú svosem getað kíkt í hennar heilapart en það hefði verið svindl.
Ragnheiður , 23.9.2008 kl. 20:38
Já fréttirnar í dag voru ömulegar.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 23.9.2008 kl. 21:06
Harakiri FF..Hafðu það gott
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 21:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.