Þeir sem eru aflögufærir
4.9.2008 | 10:15
Veikindi og erfiðleikar gera sjaldnast boð á undan sér, það fær hún Soffía sem er kona á fertugsaldri að reyna þessa dagana, hún þarf á hjálp okkar og fyrirbænum að halda
Soffía greindist með æxli í höfði í byrjun Ágústmánaðar, Soffía og börn hennar þrjú voru í sumarbústað austur á landi. Og þá fór meinið að gera vart við sig með sjónsviðsskerðingu á vinstra auga, svima og ljósfælni. Þrátt fyrir öll þessi einkenni tókst henni til allrar guðs lukku að koma sér og börnunum heim í Hafnarfjörðinn heilu og höldnu. Þegar heim var komið fóru einkennin versnandi og á endanum fór Soffía uppá bráðavakt, þar sem gerðar voru rannsóknir og höfuðmynd tekin. Á þeirri mynd sáu læknarnir eitthvað sem krafðist frekari athugunar. Daginn eftir var hún send í segulóm myndatöku, og þá kom í ljós að um æxli væri að ræða. Aðeins viku eftir greiningu gekkst Soffía undir stóra aðgerð sem tók 7 tíma, aðgerðin gekk vel en einungis var hægt að fjarlægja helminginn af æxlinu. Sýni sem tekin voru sýndu að næsta skref yrði geislameðferð og hefst hún að viku liðinni. Soffía er enn með skert sjónsvið og ljós og minnsti hávaði fara illa í hana. Soffía á 3 börn, 21 árs gamla dóttur og 2 syni 6 ára og 9 mánaða. Maður hennar og faðir barna hennar lést fyrir ári síðan í bílslysi og hét hann Jóhannes Örn.
Soffía dvelst enn á sjúkrahúsi og óvíst hvenær hún fær að fara heim, hún verður óvinnufær um óákveðinn tíma, hún hefur starfað sem húsvörður í blokk og búið í húsvarðaríbúðinni. Það er því ljóst að hún mun verða húsnæðislaus og atvinnulaus með börnin sín þrjú.
Stofnaður hefur verið reikningur til styrktar fjölskyldunni og er hann sem hér segir Reikningsnúmer: 0140-05-14321 kennitala: 161069-3619
Athugasemdir
Vonandi geta einvherjir lagt eitthvað til, það eina sem ég get gert er beðið fyrir þeim og ég ætla að gera það.
Takk fyrir þetta Ragga.
Linda litla, 4.9.2008 kl. 12:22
Æji þetta er hrikalegt...ég sendi alla mína engla og bið Guð um að veita þeim allan þann styrk sem þau þurfa á að halda. Kærleikskveðjur til þeirra. kv Gunna.
Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 4.9.2008 kl. 13:28
Fjölskyldan á alla mína samúð....ég er alltaf jafn undrandi á því hvað erfiðleikum lífsins er misskipt, ég get hins vegar lagt hönd á plóg...takk fyrir reikningsnúmerið.
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 4.9.2008 kl. 13:50
æi þetta er alveg voðalegt! Takk fyrir reikningsnúmerið, þótt ég geti ekki gert mikið, þá safnast alltaf eitthvað þegar saman kemur.
alva (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 16:00
Æ það vildi ég að ég væri aflögu fær. En það er eitt sem við hjónin höfum gert í svona tilfellum (því okkur langar helst að geta styrkt alla sem þess þurfa) og það er að hægt er að fá svokallaða kvöldopnun í búðina hjá okkur. Það kostar ekki neitt. En það sem við gerum er að minnst 10% (en fer stíghækkandi) af innkomu kvöldsins fer þá til styrktar einhvers. Og er það sá sem biður um opnunina sem ræður því hvert sú upphæð rennur. Skiptir okkur engu hvort um samtök eða einstakling er að ræða. Svo lengi sem það rennur til einhvers sem þarf sannanlega á því að halda. Þú getur fengið allar upplýsingar um þetta og lesið nánar um það sem í boði er á heimasíðu verslunarinnar www.blaze.is eða með því að hringja þangað 482-4824.
Hafðu góða helgi Ragga mín.
Tína, 5.9.2008 kl. 08:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.