Hallærislegur gærdagur
24.8.2008 | 11:08
enda sumir bara í andlegum undirbúningi fyrir átökin í dag.
Steinar nennti engan veginn í vinnuna, nó teink jú, svoan getur maður látið þegar maður vinnur hjá sjálfum sér og á ekki von á vinnuveitandanum með pönnuna í hausinn á manni ef maður vill ekki mæta. Verra ef maður vinnur sér inn pönnumeðferðina heima í staðinn!
Hann sat hér.....og leiddist !
Annaðhvort sá ég í norðurendann á honum út úr ísskápnum eða undir iljarnar á honum upp í rúm.
Ég glotti
Hann var alveg ómögulegur kallinn...
svo kviknaði ljós....honum datt í hug að klára þvottahúsið....og fór í vinnugallann.....og þar með gerðist ekkert meira.
Það komu fréttir í sjónvarpinu og hann horfði á þær.
Og þar sem hann var hvort eð er dauðleiður þá dró ég hann í tvo kirkjugarða. Hann gat ekkert orðið niðurlútari.
Ég benti honum á að hann ætti bara svona leiðinlega konu
Hann þrætti eins og sprúttsali.
Þá lá mér við að ná í pönnuna....
Mistökin verða ekki endurtekin, hann er farinn í vinnuna og ég sit hér, án þess að leiðast.
Annars góð en þið ?
(til að taka það fram þá er minn kall flottastur í heimi, það er bara gaman að gera grín að okkur hérna gamla settinu hehe
Athugasemdir
Ég er góð...... en ekki eins góð og strákarnir.
Anna Einarsdóttir, 24.8.2008 kl. 11:17
Segi eins og Anna! Ég er góð! En ekki eins og handboltastrákarnir!! Hrikalega voru þeir flottir
Hrönn Sigurðardóttir, 24.8.2008 kl. 11:54
Ég er ekki góð, pirruð út í veðrið og kallinn minn.
En strákarnir voru flottir, við megum svo sannarlega vera stolt af þeim
Knús og klús
Kidda (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 12:00
Ég er bara fín, sko.
Fyndin færsla, hehehe
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 24.8.2008 kl. 13:16
En já, Margrét mín gleymdi ekki vini sínum þann 19. og er með mynd af honum á síðunni sinni.
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 24.8.2008 kl. 13:17
Krúttfærsla hjá þér
M, 24.8.2008 kl. 14:01
Hugarfluga, 24.8.2008 kl. 16:58
Þú ert frábær penni Ragga mín.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 24.8.2008 kl. 18:48
Ég segi líka eins og hinar, ég er góð. Ekki einu sinni pirruð út i minn kall þar sem hann er í Ameríkunni. Rosalega er nú gott stundum að vera einn í stóra rúminu og hafa hlutina nákvæmlega eins og manni sýnist. En alltaf er nú ágætt að fá húsbóndann heim aftur, ( það er svo margt sem ég ræð ekki lengur við að gera hérna heima ) og þar kemur hann sterkur inn sá gamli.
Marta smarta, 25.8.2008 kl. 11:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.