Ráðvillt og rata ekki
6.8.2008 | 20:16
almennilega um á þessu bloggi, eitthvað breytt í stjórnborðinu eða ég bara búin að gleyma þessu. Ég veit ekki alveg hvað skal gera. Ég er vog. Þjáð af valkvíða og veit stundum ekki neitt í minn haus. Veit sjaldnast nokkuð í minn haus. Suma daga ætti ég bara að vera undir sæng, með kodda yfir hausnum og helst svo fast að ég vaknaði ekki meira.
Ég hef barist við að ýta þessum komandi degi frá mér. Ég hef borið mig vel þegar fólk hefur spurt mig hvort mig kvíði fyrir. Fólk hefur auðvitað trúað mér, það gerir það alltaf....auðvitað...skrattans..
þetta fer hringi í hausnum....lífið hans...mistökin öll, mín og hans, okkar allra...dauði hans..minningarnar um 19 ágúst 2007...reiðin við þetta sem fólk kallar Guð ......þetta fer allt í tóma hringi og ég næ ekki að halda utan um þetta eins og er. Bara flækja...
Ég opnaði þennan glugga, ég ætlaði ekki að skrifa eitt einasta orð nema eitthvað léttvægt spjall...smá grín og smá spaug.
Ég fiktaði um daginn og tapaði einhverjum bloggvinum, vinsamlega athugið hvort ég henti ykkur út og skilið ykkur til baka.
Ég er fífl, ræð ekki við einfaldar skipanir á vefsvæði.
Farin að sofa, illt í hausnum ...hringekjan heldur áfram. Ég ætla að vakna í september...ekki fyrr.
Athugasemdir
Þegar komið var að þessum degi hjá mér ,var ég ósköp lítil og aum.En svo skrítið sem það var, var dagurinn sjálfur ekki svo erfiður.Óttinn og kvíðin var svo yfirþyrmandi fyrir deginum,að þegar hann kom svo var það vont, en ekki í líkingu við það sem ég óttaðist.Við komum saman fjölskyldan á þessum degi og borðum uppáhaldsmat Hauksins míns.Lasanja.Með mikið af hvítlauk hehehehe.Og eigum góða stund saman,í minningu hans.Ég hugsa mikið til þín þessa daganna.Sendi þér e-mail fljótlega duglega hetjan mín
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 20:23
Elsku Birna Þetta er bara skelfilegt ástand.
Ragnheiður , 6.8.2008 kl. 20:25
M, 6.8.2008 kl. 20:43
Ég er svo íhaldssöm að ég vil bara hafa þig hér.
Velkomin og knús í milljón.
Jenný Anna Baldursdóttir, 6.8.2008 kl. 20:57
Kæra Ragnheiður, það má syrgja og það er eðlilegt að þú gerir það
Sigrún Jónsdóttir, 6.8.2008 kl. 20:58
Knús og faðm
Bryndís, 6.8.2008 kl. 21:02
Vildi að ég gæti tekið utan um þig Ragga mín...
svo sakna ég þín alveg svakalega af moggabloggi.
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 6.8.2008 kl. 21:07
Knús til þín
Dísa Dóra, 6.8.2008 kl. 21:17
Lífið er svo sannarlega ekki alltaf auðvelt. Þú fékkst aldeilis að finna fyrir því. Það er svo erfitt að missa ástvini sína, hvað þá börnin sín. Get ekki ímyndað mér hvernig það er. Hann þurfti örugglega að fara að sinna mikilvægu hlutverki annarsstaðar, kæmi mér ekki á óvart miðað við það hvernig hann var, hafði mikið að gefa þessi strákur, finn það af skrifunum þínum um hann. Þú átt eftir að hitta hann aftur. Þú hafðir hann allt, allt of stutt en þið nýttuð tímann vel - sé ég líka af skrifunum þínum um hann. Þið voruð svo náin og það er ekkert sjálfsagt. Þess vegna líður þér svona kæra tölvuvinkona. Stórt faðm, ((())), St.
Steinvör (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 21:18
Elsku Ragga, hún Birna orðar þetta vel, kvíðinn fyrir deginum er miklu verri en dagurinn sjálfur, skil skrefin þín og tel niður með þér, finnst ég ekkert geta gert nema hugsað til ykkar elskulega vinkona. Ég verð á kertavaktinni áfram. Kærleikskveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 6.8.2008 kl. 21:23
10000000
Hulla Dan, 6.8.2008 kl. 21:49
Þú ert komin aftur hingað ljúfust.
En sárt hvað þér líður illa. Mig langar að koma og taka utan um þig og spjalla við þig. Þú þarft að losa meira um tilfinningar; vera reið og sár og segja einhverjum sem þú treystir frá því hvernig þér virkilega líður. Að tala er lækning. Eina lækningin við sorg held ég.
Faðmlag frá okkur. Við bíðum eftir heimsókn.
Anna Einarsdóttir, 6.8.2008 kl. 22:26
Sendi þér hlýjar kveður elsku Ragga
Erna, 6.8.2008 kl. 22:27
Sendi þér risaknús og koss í huganum Ragga mín
P.S. verst að sjá þig ekki á Bíldudal á sunnudag en ég var þar einmitt þá líka
Huld S. Ringsted, 6.8.2008 kl. 22:34
Knús á þig.
Ég er latur að kvitta hjá þér, en ég les alltaf og knús á þig aftur.
Mummi Guð, 6.8.2008 kl. 22:36
knús á þig elsku stelpan
Guðrún Jóhannesdóttir, 6.8.2008 kl. 23:24
Elsku Ragga mín ég segi eins og það hefur verið sagt að það veit enginn hvað það er að missa börninn sín ,það er erfið lífsreynsla,,en sendi til þín kærleikskveðju,ég veit að Hilmari hefur verið ætlað annað hlutverk ,,og veit ég að hann vakir yfir þér Ragga mín kv Ólöf
lady, 6.8.2008 kl. 23:33
Sýnum Ragnheiði hlýju með því að kveikja á kerti fyrir Hilmar. Kertasíðan er hérna efst til hægri.
Anna Einarsdóttir, 6.8.2008 kl. 23:39
Kærleikskveðja
Guðrún (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 23:50
Var að kveikja á kerti Knús aftur.....
Bryndís, 7.8.2008 kl. 00:01
skil þig vel elsku Ragga mín....það er sárt að missa ástvini sína...knús og kram...kv Gunna.
Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 7.8.2008 kl. 00:58
Guðrún B. (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 09:59
...
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 7.8.2008 kl. 10:53
Hugsa svo sterkt til þín núna. Finnurðu ekki fyrir vængjaslættinum í mér og litla bröltgorminum mínum? Allar bestu vættir heimsins umvefji þig og þína, elsku Ragga.
Hugarfluga, 7.8.2008 kl. 12:23
Kæra Ragnheiður,
Sendi þér kærleikskveðju og hugsa til þín!
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 14:28
Var að kveikja á kerti
ég sakna þín líka af mogga blogginu
Rut Rúnarsdóttir, 7.8.2008 kl. 14:53
Knús á þig elsku Ragga mín ég hugsa alltaf til þín.
Kristín Katla Árnadóttir, 7.8.2008 kl. 18:05
Ég kveiki á kerti fyrir þig sæta mín!
Hrönn Sigurðardóttir, 7.8.2008 kl. 19:08
Mér líkar fíbbl einz & þú mezt & bezt....
Steingrímur Helgason, 7.8.2008 kl. 19:13
Þú hefur það sem vantar í flesta.... einlægni og að þora að sýna þig í sárum.
Ég vildi að ég gæti sagt þér hvað þú ert mér til fyrirmyndar þessa dagana. En trúðu mér... ég hugsa til þín á hverjum degi þessa dagana.
Heiða B. Heiðars, 7.8.2008 kl. 21:05
Himmalingur, 7.8.2008 kl. 21:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.