Þolinmæði
7.6.2008 | 22:25
þrautir vinnur allar, það borgaði sig að horfa (með öðru auganu) á fótboltann með kallinum. Nú eru allar flísarnar komnar upp og límdar á sinn stað. Næsta mál er að fúga veggina og það er ekkert mál. Svo þarf að mála gluggann. Rafvirkinn kemur í vikunni og dregur í innstunguna. Þá er næst að setja rör í fyrir affallið af vélunum og búa til eitthvað vatn þarna líka. Nú nema ég ætli að reka þurrhreinsun
Ég er alsæl með þetta og bara ánægð.
Góða nótt...
Athugasemdir
Skoh! Frábært
Hrönn Sigurðardóttir, 7.6.2008 kl. 22:33
Til hamingju. Djö.. sem þér eruð duglegar.
Jenný Anna Baldursdóttir, 7.6.2008 kl. 22:43
Já þér eruð duglegar frú Ragnheiður
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 7.6.2008 kl. 22:49
Guðrún unnur þórsdóttir, 7.6.2008 kl. 23:39
Til lukku með flísarnar. Satt segir þú um þolinmæðina, hún borgaði sig eftir allt
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 7.6.2008 kl. 23:46
Æðislegt Ragnheiður duglega til hamingju með flísarnar.....
Góða nótt
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 7.6.2008 kl. 23:57
Ert þú það sem kallað er tveggja manna maki? Nei, það er alltaf verið að tala um að duglegt fólk sé tveggja manna maki. Ég vildi að ég væri svona dugleg. Góða nótt.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 8.6.2008 kl. 03:16
He, he þurrhreinsun, þú ert skemmtileg. Dugnaður í þér annars kona. Eigðu ljúfan dag
Ásdís Sigurðardóttir, 8.6.2008 kl. 12:38
Já, þú ert einstaklega dugleg. Til hamingju með þetta.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 8.6.2008 kl. 13:55
Dugleg ert þú.
Kristín Katla Árnadóttir, 8.6.2008 kl. 15:14
Glæsilegt hjá þér.
Helga Magnúsdóttir, 8.6.2008 kl. 16:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.