Myndablogg
24.5.2008 | 21:27
Efst er Dagbjört, elsta dóttir Öldu og Lalla með Steinari.
Næst kemur sú minnsta, Berglind sem er bara tveggja ára
Neðst er Guðmunda, hún var hins vegar upptekin að leika sér.
Leggjumst öll á eitt og hjálpum þessari fjölskyldu |
fimmtudagur, 22 maí 2008 | |
Sett hefur verið af stað söfnun vegna mikilla veikinda sem komið hafa upp hjá, Öldu Berglindi Þorvarðardóttur. Alda sem er borin og barnfæddur hornfirðingur, hefur nú greinst með illkynja sjúkdóm og framundan er strangur og erfiður tími hjá henni og fjölskyldu hennar. Ljóst er að eiginmaður hennar Lárus Óskarsson verður frá vinnu á þessum erfiðu tímum. Lárus og Alda eiga þrjár litlar stelpur á aldrinum 2ja til 7ára. sem þurfa á hans umönnun að halda, og einnig okkar stuðnings í þessari baráttu.Stofnaður hefur verið söfnununarreikningur handa þessari fjölskyldu í Sparisjóð Hornafjarðar. Látum okkur málið varða og sýnum samhug í verki og leggjum þeim lið!! Margt smátt gerir eitt stórt. Reikningsnúmerið er: 1147-05-401196 Kt: 260574-3379. Velunnarar. |
Athugasemdir
Sætar stelpur knús til þessarar fjölskyldu
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 24.5.2008 kl. 22:44
Að sjálfsögðu látum við okkur málin varða og stöndum við bakið á þessari fjölskyldu, ekki spurning!
Knús á þig elsku Ragnheiður mín og hafðu góðan sunnudag!
Tiger, 25.5.2008 kl. 02:37
Elsku Ragga Mín og allt þitt fólk vona að þið hafið haft gott kvöld í gærkveldi, flottar stelpur, sú elsta komin á grettualdurinn, kannast við það. Við munum biðja fyrir Öldu, Lárusi, Dagbjörtu, Berglindi og Guðmundu. Guð veri með þeim öllum.
Ragga, hef ég sagt þér? nei geri það nú.
Mér finnst hann Steinar þinn virka eins og klettur sem hægt sé að halla sér að og hann verndar um þig,
en hann er algjör stríðnispúki, en þessir kostir fara oft saman.
Fyrirgefðu mátti til að segja þetta.
Knús til ykkar allra
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.5.2008 kl. 08:48
Klettur já...það er alveg rétt hjá þér. Hann er alveg stöðugur en hann er mikill prakkari líka.
Kær kveðja til þín Milla mín
Ragnheiður , 25.5.2008 kl. 09:08
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 25.5.2008 kl. 11:57
Allir að taka þátt og stiðja þessar fallegu stúlkur og foreldra þeirra.
Eyrún Gísladóttir, 25.5.2008 kl. 16:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.