Auglýsing til dreifingar á bloggvef
7.5.2008 | 21:20
Kæri vinur,
It is important to show children that not all adults are caught up in the conspiracy of silence!Bið þig að senda þetta áfram á þinn vinahóp og spyrja hvort þau vilji hafa áhrif á hvort börn verði fyrir kynferðislegu ofbeldi á Íslandi ??
Eftir fyrstu auglýsingaherferð Blátt áfram, kom til mín kona með tárin í augunum og sagðist vilja þakka fyrir að hafa séð auglýsinguna í sjónvarpinu. Sat og horfði á með 11 ára gamalli dóttur sinni sem brotnaði saman og sagði frá kynferðislegu ofbeldi.
Önnur ung stúlka sagði frá og kom þá í ljós að sá maður var að beita margar ungar stúlkur kynferðislegu ofbeldi og fékk hann dóm í kjölfarið.
Þetta hefur áhrif !
1 af hverjum 5 stúlkum og 1 af hverjum 10 drengjum verða fyrir kynferðislgu ofbeldi fyrir 18 ára aldur(Hrefna Ólafsdóttir 2002)
Styrktartónleikar verða haldnir á fimmtudaginn til að safna fyrir birtingu á nýrri auglýsingaherferð, átakið Verndarar barna
Blátt áfram þarf á þinni hjálp að halda, komdu og hlustaðu á eina af þínum uppáhaldshljómsveitum og styrktu gott málefni.
Styrktartónleikar 8 maí 2008
Stórtónleikar á NASA
Styrktar tónleikar á NASA 8 maí 2008.
12 af bestu hljómsveitum landsins koma fram
Húsið opnar klukkan 19:00 og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00
Fram koma:
Nylon, Sálin hans Jóns míns, Ný Dönsk, Ljótu Hálfvitarnir, Buff, Á móti sól, Merzedes club, Rokksveit Rúnars Júlíussonar, Einar Ágúst, Brain Police, Sverrir Bergmann, Bermuda
Miðaverð er 2000 kr og rennur allur ágóðinn til Blátt áfram.
Safnað er fyrir nýrri auglýsingaherferð Verndarar barna
Miðasala á Pizzo Pizzería á Grensásveg !!
Blátt áfram þakkar fyrir þetta frábæra framtak!
Bestu kveðjur,
Sigríður BjörnsdóttirBlátt áfram!Kringlunni4-6, 6. hæð, 103 Reykjavík
Sími GSM (mobile): 893-2929, Netfang (e-mail): sigga@blattafram.is
Heimasíða (homepage): www.blattafram.is Forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum
Athugasemdir
Frábært framtak. Takk fyrir þetta.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 7.5.2008 kl. 21:49
Frábært framtak hjá þessu fólki að styðja Blátt Áfram.
Takk fyrir þetta.
Jenný Anna Baldursdóttir, 7.5.2008 kl. 22:41
Veistu, Ragga, þegar ég las þetta í dag þá bara tók ég dóttlu mína á beinið, (já, bara lærbeinið á mér), & ræddi þetta opinskátt við hana, um þetta sem að hún las um í fréttunum nýverið & hvernig hún túklaði það, & hvort hún myndi nú ekki passa sig á því að neita öllu utanfjölskyldufólki um knúsið & segja pabba & mömmu frá því.
Hún er 11 ára, áttaði sig alveg á því hvað ég var að fara.
Besta vörnin er heimgerð, held ég.
En hvað veit ég, ég er nú bara karlmaður.
Steingrímur Helgason, 8.5.2008 kl. 00:47
Frábært framtak Ragga mín, - Takk fyrir að vekja athygli mína á þessu.
Guðrún B. (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 00:54
Það er rétt hjá þér minn kæri Steingrímur. Þessar forvarnir byrja heima og það þarf að kynna börnum hver rétt snerting er og hvað er rangt.
En ég hnaut um "utanfjölskyldufólkið" og alls ekki að ég sé að saka þig um neitt, ekki taka því þannig. Fólk þarf líka að hafa varann á sér með innanfjölskyldufólk. Ég held að á vef blátt áfram séu góðar leiðbeiningar um hvernig skal ræða við börn og kynna þeim málefnið án þess að hræða þau og fylla af tortryggni.
Ragnheiður , 8.5.2008 kl. 00:54
Frábært framtak hjá þér. Takk kærlega fyrir þetta Ragga mín.
Linda litla, 8.5.2008 kl. 01:01
Þetta er málið - ekki þegja kynferðislegt ofbeldi í hel heldur taka það og tala það í kaf. Gott framtak, var einmitt að senda í dag svona póst á nokkra góða vini. Um að gera að útskýra málin heima fyrir eins og Steini sagði .. það er forvörn sem skilar sér.
Knús í nóttina þína mín elskulega Ragnheiður og eigðu ljúfa drauma og fallegan dag á morgun!
Tiger, 8.5.2008 kl. 03:18
Blátt áfram eru samtök sem eiga fullkomlega rétt á sér í þjóðfélaginu í dag og þær eiga heiður skilið fyrir að stofna þau.
Þú átt líka heiður skilið Ragga mín, þakka þér fyrir að vera það sem þú ert. Óendanlega góðMilla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.5.2008 kl. 12:54
Frábær samtök sem eiga fullan rétt á sér.
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 8.5.2008 kl. 13:40
Já ég er alveg sammála gott framtak takk Ragga mín
Kristín Katla Árnadóttir, 8.5.2008 kl. 20:22
Flott framtak og vonandi ganga tónleikarnir vel. Málefni sem þarf að tala um og hafa uppi á borðinu. kveðja til þín
Sigrún Óskars, 8.5.2008 kl. 21:32
þegar ég var í vinnuni í dag þá voru 2 dömur að fara á tónleikanna,ég er ný komin í þetta félag,,svo kemur erlend kona sem verður með fyrilestur þann 15 mai ,,vonandi koma þeir sem treysta sér,,þetta er gott málefni ,,takk elsku Ragnheiður fyrir þitt innlit á bloggið mitt óska þer og fjölsk innilega góða helgi kv ólöf
lady, 8.5.2008 kl. 22:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.