Vandamálið leyst
5.4.2008 | 01:53
en ekki hvað. Búin að baka fjóra marengsbotna og allt í góðum gír. Ég hef bara þjáðst af einhverskonar frammistöðukvíða. Þetta snarlagaðist um leið og Steinar kom heim, mig hefur vantað áhorfanda.
Hann hló svo mikið að viðskiptum mínum við fataprestinn (sjá næstu færslu) að hann var nærri kafnaður. Hann hefur lúmskt gaman að sinni klaufakellingu enda löngu búinn að læra að konan hans er viðbrigðin með afbrigðum.
Mamma hvað hélstu eiginlega að þetta væri spurði Solla, innbrotsþjófur ?
Nei ég hélt örugglega að þetta væri draugur, það er bráðheppilegt að berja þá aðeins svaraði ég.
Aumingja Himmi sagði hún þá.
Jæja nú skal spanað í bælið. Ásdís bestavinkona á afmæli í dag. Skreppið þangað og óskið til hamingju með afmælið.
Hún deilir þessum degi með miklum uppáhaldsfrænda mínum sem var mér eiginlega sem bróðir. Við erum systrabörn og héngum endalaust mikið saman þegar við vorum krakkar.
Til hamingju með afmælið Svenni.
Góða nótt
Athugasemdir
Hrikalega ertu myndó, bara búin að baka marengs botna.
Þú ert frábær hlakka til að lesa næstu færslu.
Knús á þig Ragga mín.
Þín Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.4.2008 kl. 09:10
Veistu að ég hef aldrei bakað marengsbotna sem hafa verið í lagi.
Góða skemmtun í afmælinu í dag. Mátt knúsa Björninn frá mér, getur sagt að það sé fra snarklikkaðari kjellingu.
Knús og klús
Kidda (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 10:34
Knús til Kela sem mér þykir orðið svo vænt um hehehehehehe.Og þín
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 10:41
Knús inní helgina.
Helga skjol, 5.4.2008 kl. 11:36
Vá hvað þú ert dugleg.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 5.4.2008 kl. 12:33
Hæ duglegust. Ég er nú svona viðhrekkin eins og þú
maður heldur að maður sé einn en sér svo eitthvað útundan sér, ekki gaman. Hvenær á svo að borða kökurnar???
hafðu það gott í dag.
Ásdís Sigurðardóttir, 5.4.2008 kl. 12:57
Dugleg ertu, mig dauðlangaði í marens-tertu eftir lesturinn .. ekki er ég svona mikið myndó, lét mér nægja að ryksuga og skúra i dag, þvo og svoleiðis. Best líka að nota þessa daga sem maður á frí til að klára skylduna.
Mesta knúsið til þín elskan.
Til lukka afmælisbörn
.
Guðrún B. (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 17:37
Bara að láta vita af mér, Ragga mín. Er vonandi ekki gleymd þó ég sé lítið sjáanleg þessa dagana. Hafðu það gott.
Hugarfluga, 5.4.2008 kl. 18:15
ég skellti upp úr er eg las færsluna hér á undan, hef svo sem lent í svipuðu því upplifði ég aðeins tilfinninguna með þér.
4 marengsbotnar uuummmm
Knús til þín mín kæra
Guðrún Jóhannesdóttir, 5.4.2008 kl. 19:22
Ummm...þetta er svengdar færsla marengsbotnar eru mín veika hlið.
Njóttu þín.
Kristín Snorradóttir, 5.4.2008 kl. 21:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.