Magnað fólk-magnaður þáttur
11.3.2008 | 22:34
Var að horfa á Kompás þáttinn. Foreldrar litla fallega Kristins Veigars stóðu sig eins og þær sönnu hetjur sem þau eru. Ég las minningargreinarnar um þennan svipfallega dreng og táraðist ofan í blaðið. Það var eins og verið væri að lýsa Himma smágutta, uppátækjasamur duglegur og skemmtilegur snáði. Ég er auðvitað sérlega viðkvæm fyrir foreldrum sem missa börnin sín, það er hvellaumur blettur.
Mín hjartans ósk er sú að einhverjar upplýsingar berist sem duga munu til að upplýsa málið.
Annars bendi ég á blogg systur minnar en það er um allt annað málefni. www.siggahilmars.blog.is
Góða nótt
Athugasemdir
Þetta eru æðrulausar og þroskaðar manneskjur. Ég finn ákaflega til með þeim. Vonandi upplýsist málið sem fyrst.
Takk f. mig.
Jenný Anna Baldursdóttir, 11.3.2008 kl. 22:50
Æi þetta er svo skelfilegt.Góða nótt krúttið mitt
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 22:51
Æi þetta var mjög sorglegt.
Góða nótt Ragga mín
Kristín Katla Árnadóttir, 11.3.2008 kl. 22:56
Mjög góður þáttur, ég sat með tárvot augun líka. Þau komu vel út, foreldrarnir og ég dáist að þeim fyrir æðruleysið. Vonandi kemur lausn í málið í kjölfarið.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 11.3.2008 kl. 23:27
Því miður sá ég aðeins kynninguna. Mikið fann ég til með þeim.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 12.3.2008 kl. 00:10
Þetta var átakanlegur þáttur og var ég með tárin í augunum
Foreldrarnir stóðu sig ótrúlega vel og vonandi að einhver gefi sig fram með upplýsingar um þetta.Góða nótt Ragga mín bestasta
Katrín Ósk Adamsdóttir, 12.3.2008 kl. 00:20
Ég sá ekki þáttinn en er í fersku minni þetta mál. Hræðilegt að ekki skuli vera hægt að upplýsa þetta fyllilega. Finnst kannski að það vanti bara heimildir fyrir lögregluna að vera aðgangsharðari við grunaða, fá botn í málið. En ég sá ekki þáttinn þannig að ég veit ekki í raun hvernig að þessu var staðið. Þvílík sorg. Knús frá mér elsku Ragga mín, þú ert alltaf jafn yndisleg að vanda.
Bjarndís Helena Mitchell, 12.3.2008 kl. 03:05
Tiger, 12.3.2008 kl. 03:36
ÉG NÁÐI EKKI ÞÆTTINUM, en ég þekki til föðurfólks litla drengsins

og er það heilt og gott fólk, en það er ekki það sem skiptir máli,
heldur sorgin sem þau hafa þurft að glíma við en ekki fengið frið til,
vegna þess að það eru gloppur í kerfinu, er það ekki furðulegt elsku Ragga mín, hversu oft það kemur fyrir.
Guð veri með þeim öllum
og kær kveðja til þín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.3.2008 kl. 06:35
Ég gat því miður ekki horft á þáttinn í gær en ég vona innilega að þetta beri einhverjar upplýsingar til foreldra Kristins svo þau geti snúið sér að sorginni eins og Tigercopper segir.
Ásta Björk Hermannsdóttir, 12.3.2008 kl. 08:29
Þau stóðu sig mjög vel og voru ótrúlega æðrulaus. Vildi óska að botn fengist í málið. Fallegur drengur sem þau áttu.
Ásdís Sigurðardóttir, 12.3.2008 kl. 10:46
Ég bloggaði einmitt um þetta á minni síðu. Ég var bara miður mín þegar þátturinn var búin. Þvílíkar hetjur sem þessi ungu hjón eru.
Helga Magnúsdóttir, 12.3.2008 kl. 12:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.