Má flissa að þessu ?
4.2.2008 | 13:42
sko eftirmálanum af þessu bankaráni í morgun ?
Ég held að þetta sé alveg í fyrsta sinn sem Byko aðstoðar við að upplýsa bankarán. Ætli þeir hjá Húsasmiðjunni sitji núna alveg ; Djö ! Rosalega fær Byko góða ókeypis auglýsingu !!
Svo er nú löggan engir aukvisar í þessu. Þeir þekkja sína og eru eins og sporhundar. Minnir mig á atvik nýlega. Menn í vinnunni minni hafa verið að lenda í klandri með aðila sem borgar ekki. Viðkomandi gleymdi síma í einum bílnum og þar var mynd. Bílstjórinn skokkaði á næstu löggustöð með símann og spurði hvort þeir þekktu þennan ? Já já já alveg um leið, vissu nákvæmlega hver þessi var.
Svo hafa greifarnir í morgun tekið sér leigubíl...það bíða mín ábyggilega sögur í vinnunni á eftir .
Annars fór heilinn aðeins úr sambandi, strandaði á tenglalistanum en á eftir að bæta aðeins í hann.
Dúu tókst að láta mér verða ískalt í morgun en Jenný lét mig næstum gubba. Dúa skrifar um frost en Jenný er að skrifa um Playboy kallinn og þessar 3 sambýliskonur hans, þær líta út fyrir að vera 15 en eru nú víst talsvert eldri....en kallinn er kominn á heimsminjaskrá með öllum útlimum gatslitnum...ó boj
Athugasemdir
Snilldar færsla hjá þér.
Ásdís Sigurðardóttir, 4.2.2008 kl. 13:46
TENGLALISTI HVAR ER JENNÝ ANNA BLALDURSDÓTTIR? ER HÚN EKKI SKEMMTÓ? BÚHÚ
lalalallala
Jenný Anna Baldursdóttir, 4.2.2008 kl. 17:03
Jenný Anna !!
Þú ert bloggvinur !!!
Ragnheiður , 4.2.2008 kl. 17:12
Kvitti kvitt fyrir innlitið. Alltaf gaman að kíkja á þig :)
Steinvör (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 21:58
Guðrún Jóhannesdóttir, 4.2.2008 kl. 23:17
Ó
Jenný Anna Baldursdóttir, 5.2.2008 kl. 20:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.