Held að ég sé búin að læsa
12.12.2007 | 16:07
og þeir sem eru skráðir eiga að komast vandræðalaust inn. Annars er lykilorð sem ég mun eingöngu úthluta sjálf. Ef einhver spyr ykkur þá megið þið gefa upp emailið mitt ragghh@simnet.is
Flensudraslið er enn að kvelja mig..djös sem þetta er leiðinlegt. Eina góða er að við liggjum 2 hérna, það er svo leiðinlegt að hanga einn heima í flensunni. Hundar víkja ekki frá mér og reka í mig nefið af og til. Þeim líst ekki á mig, asnaleg lykt af mér og svona.
Skrifa meira seinna, orkan er sko engin hérna.
PS opnaði aftur, mér tókst ekki að opna aðgang allra sem hér áttu að fá að vera. Búin að senda póst á kerfisstjórana og bíð eftir svari frá þeim. Ég er ekki með emailið hjá ykkur öllum þannig að ég gat ekki látið vita...sorry....ef einhverjir ákveða að móðgast þá það.
Athugasemdir
Þú heppin að hafa einhvern heima veikan með þér. Alltaf miklu skemmtilegra að vera veikur í hóp.
Láttu þér bara batna og farðu vel með þig.
Fjóla Æ., 12.12.2007 kl. 16:11
Afhverju viltu læsa blogginu þínu?
Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 12.12.2007 kl. 16:33
Æi það er gott að hafa Hundana sér við hlið þegar maður er veikur láttu þér batna Kæra Ragnheiður mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 12.12.2007 kl. 16:41
Það hentar mér betur að hafa þetta lokað eins og málum er háttað.
Takk Fjóla og Katla
Ragnheiður , 12.12.2007 kl. 16:42
okey láttu þér batna
Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 12.12.2007 kl. 16:43
Láttu þér batna sem fyrst og hafðu það gott.
Ragga (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 16:45
Velkomin í þennan lokaða heim Heppin að hafa einhvern veikan með þér, vona að sá þriðji þjóni ykkur vel
Knús og klús
kidda, 12.12.2007 kl. 17:34
Já þessi flensa er óþverri. Láttu þér batna sem fyrst
Bryndís R (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 17:36
Takk fyrir góðar óskir...sé það á morgun hvort lokunin hefur tekist eins og til er ætlast.
Þessi þriðji ( kallinn ) fór í vinnuna enda ekkert nema leiðindapestargemlingar heima hjá honum.
Ragnheiður , 12.12.2007 kl. 17:39
jeiiiii ég kemst inn
Jóna Á. Gísladóttir, 12.12.2007 kl. 18:18
Soðið vatn/grænt te með hunangi.. sofa.....lesa.....sofa meira....sturta/bað......meira vatn/te með hunangi.....klikkar ekki. Góðan bata
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 12.12.2007 kl. 19:21
...... sendi þér stóran orkubita.... ég á eiginlega of mikið núna.
Anna Einarsdóttir, 12.12.2007 kl. 19:30
Æ ég vona að þú farir að losna við þennan flensuskít Ragga mín
Huld S. Ringsted, 12.12.2007 kl. 19:38
tek undir með Hrafnhildi og Önnu þetta er það eina sem dugar, svo er nú ekki dónalegt að vera tvö
saman, eða þannig.
Hundarnir víkja ekki frá manni ef eitthvað er að
Þeir eru tryggustu vinirnir, að öllum öðrum ólöstuðum. Farðu vel með þig Ragga mín.
Sendi þér orku frá Húsavík það er nægilegt af henni hér. Þín Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.12.2007 kl. 21:03
Láttu þér batna elsku Ragga og ég vona svo sannarlega að ég fái áfram að komast inn.
Jenný Anna Baldursdóttir, 12.12.2007 kl. 21:11
Jenný mín, þú áttir að vera á aðgangslistanum. Málið er að ég gat ekki virkjað hann nema hálfan og komst ekki að því fyrr en undir kvöld. Þökk sé Signýu og Millu. Annars virkar þetta þannig að hægt er líka að biðja um lykilorð og þá geta óskráðir skrifað það inn en notendur á mínum lista eiga ekki að þurfa þess.
Ég bíð eftir svari frá kerfisstjórum moggabloggs.
Ragnheiður , 12.12.2007 kl. 21:18
Jess, ég er ekki úti á svelli að fjúka, láttu þér batna flensuskr......
Guð gefi þér góða nótt og glaðan dag að morgni, kveðja að norðan Halla.
., 12.12.2007 kl. 21:31
vonandi batnar þér sem fyrst og farðu vel með þig.
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 12.12.2007 kl. 22:03
Láttu þér batna kella
Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 22:24
Láttu þér batna, heillin
Greta Björg Úlfsdóttir, 12.12.2007 kl. 22:47
Reyndu bara að njóta samverunar við hann í veikindunum og hvíla þig. Góðan bata.
Kristín Snorradóttir, 12.12.2007 kl. 23:04
Kveikti á einu kerti ... vantar lærdómsandann yfir mig ;) Það hefur virkað hingað til og nú bíð ég bara þolinmóð með skólabækurnar fyrir framan mig að þrá mín um að vitneskjan um mannslíkamann hellist yfir mig
Knús úr Firðinum góða C",)
Hjördís Ósk (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 23:22
Æ, vonandi batnar ykkur báðum fljótt. Þetta er alveg að koma hjá mér Knús til þín og láttu fara eins vel um þig og hægt er.
Bjarndís Helena Mitchell, 12.12.2007 kl. 23:38
issss mér er gróflega misboðið manni bara hent út eins og skítugu tusku......
takk fyrir að bjóða mér inn aftur samt
vona að þér batni sem fyrst
friður!
Signý, 12.12.2007 kl. 23:57
Æj hehe það var óvart en hefðir þú ekki kvartað skilmerkilega þá hefði ég ekki fattað að 20 manns voru útilokaðir
Ragnheiður , 13.12.2007 kl. 00:03
Ha ! Er ég inni eða úti ? Ég vona að heilsan sé að koma aftur
Katrín Ósk Adamsdóttir, 13.12.2007 kl. 00:11
Þú átt að vera inni
Ragnheiður , 13.12.2007 kl. 00:27
Hmm er ég inni eða úti ? Komst ekki inn í dag, en núna er ég hér
Láttu þér batna dúllan mín.
Knús
Guðrún B. (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 00:32
knús, gott að vita að ég er hér ennþá
HAKMO, 13.12.2007 kl. 00:33
Takk Ragga mín
Katrín Ósk Adamsdóttir, 13.12.2007 kl. 00:36
farðu bara vel með þig mín kæra, maður stendur ekki endalaust. Flensufj.... (segi aldrei ljótt orð "hóst hóst") er ekkert lamb að leika sér við.
Bíð eftir að komast að því hvort ég sé úti eða inni
Góða nótt knús
Guðrún Jóhannesdóttir, 13.12.2007 kl. 00:46
Já það varð smá vandamál, hreinræktuð tæknileg vandræði....sko alvöru
Ragnheiður , 13.12.2007 kl. 01:05
Ég er inni, að minnsta kosti ennþá! Góða nótt.
Kolgrima, 13.12.2007 kl. 01:41
Batni þér sem fyrst Ragga mín. Góða nótt
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 01:58
Batakveðjur frá mér, vonandi er ég inni.
Auður L, 13.12.2007 kl. 08:52
Mér þykir svo vænt um svo ofur marga bloggvini mína, og það er svo fyndið að ég sé ykkur öll á svo myndrænan hátt.....Þig sé ég alltaf sem mömmuna sem hefur vit fyrir hinum bloggurunum (fjölsk) einskonar siðapostuli og sem huggar líka og veitir yl......Æ!!! Áður en ég verð væmin.....Þú ert svona límið sem heldur brotunum saman....samt soldið ströng Og ég vona að ég verði áfram inni.
Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 13.12.2007 kl. 11:07
Elsku Ragnheiður mín, láttu þér batna sem fyrst.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.12.2007 kl. 13:33
Flensuprautu segirðu...ekki þýddi það fyrir mig. Var skikkuð í svoleiðis af vinnustað fyrir áraröðum, hótað að ef ég færi ekki þá fengi ég ekki greidd laun í veikindum. Ég fór eins og góður starfsmanni sæmdi og fárveiktist af sprautunni. Læknir á LSP ráðlagði mér að láta ekki sprauta mig, ég væri líklegast ein þeirra sem þyldi ekki sprautuna.
Ragnheiður , 13.12.2007 kl. 14:58
Takk fyrir að vilja vera blogg-vinkona mín. Ekki örvænta, þó að ég kvitti ekki fyrir mig á hverjum degi, það geta nefnilega liðið nokkrir dagar milli þess, sem ég er í tölvunni.
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 13.12.2007 kl. 15:11
Batakveðjur, elsku snúllan mín.
Hef tvisvar fengið flensusprautu ... og í bæði skiptin veiktist ég af flensu, öðru afbrigði líklega. Síðan hef ég ekki þegið sprautu.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 14.12.2007 kl. 00:39
Góðar batakveðjur.
Ingigerður Friðgeirsdóttir, 14.12.2007 kl. 15:23
Láttu þér batna og farðu vel með þig.
Marta B Helgadóttir, 15.12.2007 kl. 00:41
Hæ darling. Ég er inni og þurfti ekki password, vona að ég tolli inni, annars sendi ég póst. Hafðu það gott mín kæra og láttu þér batna.
Ásdís Sigurðardóttir, 15.12.2007 kl. 00:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.