Rasismi eða ?

Ég skrapp yfir til hennar Heiðu, þar vísar hún í myndband sem er mikið í umræðunni í USA. Þar hafa menn oft sett met í einkennilegum hugsanagangi. Þetta slær þó flestu við...þarna verður stúlkukindinni á að glopra út úr sér óheppilegum ummælum sem falla undir kynþáttafordóma í miðjum hmmm...klíðum. Og það fer allt á hliðina...þarna standa karlar í verslunum (klámverslunum) alveg ferlega hneykslaðir á ummælum stúlkunnar. Þeim finnst ekkert að því að standa í slíkri sérverslun, það er greinilega aukaatriði í málinu. Það stendur þarna meira að segja einn á sprellanum og tuðar yfir að kynlífsiðnaðurinn sé settur niður með þessum ummælum.

Myndbandið kemur hér á eftir. Það er EKKI fyrir viðkvæma og EKKI fyrir börn. Vinsamlega hafið það í huga ef þið ákveðið á ýta á play.

 


Use Of 'N-Word' May End Porn Star's Career

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Akkurat Steinunn. Ég lét Bjössa horfa á þetta áðan og hann alveg í kerfi hugsandi með sér...hvað er mamma að láta mig horfa á ?

Svo náði hann innihaldinu og skildi málið, hann skellihló að þessu

Ragnheiður , 15.10.2007 kl. 13:22

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Bjössi er eins og ég og Heiða, með grófan og ruddalegan húmor.  Smjúts á hann og þig í leiðinni krútta mín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.10.2007 kl. 13:54

3 Smámynd: Ragnheiður

Þetta nær ekki alveg inn á húmorskalann hjá mér...ég glotti nú samt á einum stað í þessu myndbandi. Filth sagði sárhneykslaður klámbúðareigandinn...ja eða viðskiptavinur téðrar verslunar. Hann hélt að skrattans klámmyndardisk...en hann var ekki að tala um hann.

Ragnheiður , 15.10.2007 kl. 14:15

4 Smámynd: Ragnheiður

að=á

Ragnheiður , 15.10.2007 kl. 14:16

5 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Aftur og aftur fær maður þá ýmind af Ameríkönum að þeir séu  heimskari en gengur og gerist, og í þessu myndbandi toppa þeir sjálfa sig.

Hvernig hefur þú það annars? 

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 15.10.2007 kl. 14:55

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég hugsaði það sama og Hrafnhildur: "Þessir klikkuðu kanar!"

Og hvað með konur og þau nöfn sem þær eru kallaðar í þessum bransa, ha? 

Greta Björg Úlfsdóttir, 15.10.2007 kl. 16:36

7 identicon

Sorglegt hvað sumt fólk getur verið illa gefið...

Og þá meina ég ykkur. The Onion???? Frétt??? Þetta er grínskedds, og það fjári góður. Svo ræðið þið þeta bara eins og um stórfrétt væri að ræða???? g hvaða "umræða er um þessa frétt í ameríku" ???? ÞETTA ER EKKI FRÉTT!!!!! og ef þú gætir vinsamlegast bent mér á umræðuna þá yrði ég þakklát.

Erna (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 10:48

8 Smámynd: Ragnheiður

En kæra Erna, ef þetta er grín og okkur finnst það ekki fyndið megum við þá ekki tala um það í friði ?

Þetta fer voðalega í þig,svo voðalega að það er eiginlega fyndnara en þetta flotta grín sem er verið að tala um

Ragnheiður , 16.10.2007 kl. 11:06

9 identicon

"EF" ????

Eru líkur til að Baggalútur verði með alvöru fréttaflutning? www.theonion.com skoðaðu síðuna. Ef ykkur finnst þetta ekki fyndið þá eruð þið ekki að ná hárfínum húmornum, og ef það er vandamálið, hví ertu þá að birta þetta? Viltu velja grín ofaní aðra? Mér finnst þetta mjög fyndið. En ég var ekki að fetta fingur útí húmorsleysi heldur DV vinnubrögðin að fjalla um þetta eins og "FRÉTT"

Annars er enginn pirringur hérna megin, mér finnst brandari ofaná brandarann fárið í kringum þetta.

Erna (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 12:17

10 Smámynd: Ragnheiður

Málið er einfaldlega það að þú ert að reyna að velja skoðanir ofan í mig. Baggalútur veit ég ekkert hvað er. Ég hef ekki húmor fyrir þessum og ætla þar með ekki að skoða www.theonion.com

Ég er að birta þetta vegna þess að mér sýndist svo á minni síðu.

Sendu mér emailið þitt svo ég geti borið undir þig framvegis hverju ég má hneykslast á/ekki hneykslast á = hvað mér má finnast fyndið/og hvað mér má ekki finnast fyndið

Ragnheiður , 16.10.2007 kl. 12:20

11 identicon

Allt í lagi að hneykslast, eins og ég var að hneykslast á ykkur. Ég tel mig mega hlægja að the Onion áfram. Hvet þig reyndr til að skoða þá síðu. Gætir hlegið upphátt. Kíktu líka á www.baggalutur.is, verður að vita af þeim til að vera með í umræðunni.

Erna (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 12:48

12 Smámynd: Ragnheiður

Já ég skoða það.

Ragnheiður , 16.10.2007 kl. 12:50

13 identicon

LOL, þvílíkur bjánaskapur. Þarna eru ljótustu orð notuð eins og C orðið og það er allt í lagi.  Þetta er klámiðnaður, hverjum er ekki skítsama hvað það pakk kallar hvort annað ?? 

Mér fannst bara fárið í kringum þetta fyndið.  

Guðrún B. (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 19:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband