Út um gluggann
12.10.2007 | 14:19
sé ég rauðan jeppa með græna kerru. Þarna hefur ekki verið fenginn stílisti
Í morgun sá ég mann með stóra málningarskellu á hnakkanum, hann á áreiðanlega ekki konu-eða bara rosa litla konu sem sér ekki svona hátt.
Ég sé líka lyklalausan leigubíl
Það sem mest er um vert er að ég sé ekkert slæmt út um gluggann. Bara hluti sem eru skemmtilegir. Það er gaman.
Áríðandi tilkynning ; msnið mitt dó...ég veit ekki alveg hvað ég á að gera í því máli..það kemur í ljós bara.
Athugasemdir
Kannast þú eitthvað við að vera haldin þessari lóðréttu fötlun, verandi einn og ekkert á hæð??
Þröstur Reynisson, 12.10.2007 kl. 15:21
hehe já..kannast aðeins við hana, er að sækja um örorkustyrk út á þetta
Ragnheiður , 12.10.2007 kl. 16:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.