Fallegur dagur
12.10.2007 | 09:39
Sjúklingurinn sat ósvífinn í fjallahéruðum Reykjavíkur í morgun þegar ég mætti til vinnu minnar. Honum var sleppt lausum þegar búið var að útiloka alvarleg veikindi. Eitthvað á samt að skoða hann betur í dag til öryggis.
Ég fer ekki vestur. Það rakst hvað á annars horn þannig að niðurstaðan varð þessi. Ég fer bara í barnaafmæli í staðinn, ég hlýt að komast það.
Annars er allt bara sæmó...tekst aðeins að ýta frá mér sorginni og einbeita mér að fallegum minningum, er ss farin að hafa aðeins stjórn á heilanum. Næstu vörður eru ýmis afmæli á næstunni og þar á meðal hans.
Athugasemdir
Fjallahéruð Reykjavíkur, ýmsir staðir sem manni dettur í hug
Leitt að þú komist ekki vestur, en kannski áttu bara ekkert að fara þangað núna. Heldur í barnaafmæli
Knús og klús fyrir daginn
kidda, 12.10.2007 kl. 11:00
Fjallahéruð Reykjavíkur = Grafarholt???
Segi eins og Ólafía, sennilega áttir þú ekkert að fara vestur núna, koma tímar og koma ráð, þeir eru ekkert á leiðinni burtu, er það? Það er að segja firðirnir...hehe...
Skemmtu þér vel í afmælunum!
Greta Björg Úlfsdóttir, 12.10.2007 kl. 11:14
Vonandi kemstu þá bara í barnaafmælið :) þau eru oft ansi góð.
Annars, góðan dag þú mikla hetja :)
Guðrún Jóhannesdóttir, 12.10.2007 kl. 11:28
Þú ert svo mikið megakrútt Ragga
Jenný Anna Baldursdóttir, 12.10.2007 kl. 12:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.