ég er nú ekki fljótust að hugsa
26.4.2010 | 16:01
en að mér læðist illur grunur. Ég held að við, almúginn, eigum að borga þetta svínarí allt.
Ég fann nefnilega nánast innheimtumann ríkissjóðs í forstofunni hjá mér áðan, að vísu í bréflíki. Honum var snarlega skúbbað upp og ég fór með hann til endurskoðandans. Endurskoðandinn brosti bara, bréf eru til þess að svara þeim glotti hann og taktu gleði þína á ný Ragnheiður ...
En svo fór ég að spá...
framtalið mitt er nánast eins og í fyrra, árið þar á undan og árið þar á undan....
Hvað vill þessi innheimtumaður ?
Steingrímur, viltu gjöra svo vel og fara vel með atkvæðið þitt !
Nauðungaruppboðum ekki frestað frekar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
G'oð
Ásdís Sigurðardóttir, 26.4.2010 kl. 16:36
Og hvað vildi innheimtumaðurinn þér ? Ertu ekki að keyra leigubíl er það ekki rétt hjá mér ? Vinnan þín hlýtur að hafa minnkað og þar af leiðandi tekjurnar og reksturinn upp úr öllu valdi með hækkandi eldsneyti og tryggingum og öllum varahlutum. Held að flestir í þínum bransa reikni sér lítil laun þessa dagana, þessi ríkisstjórn er til skammar !!
Elísabet (IP-tala skráð) 26.4.2010 kl. 17:36
ég er búin að fá upp í kok af fjórflokknum, þar hefur enginn reynst betri en annar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.4.2010 kl. 17:46
Elísabet, rétt hjá þér en ég verð að játa að ég las bréfið ekki þannig að ég muni hvað hann skrifaði. Henti því í endurskoðandann enda er hann með bókhaldið mitt ...takk fyrir þitt innlegg.
Veit ekki hverju á að kenna um Cesil en eitthvað er rotið í danaveldi
Ragnheiður , 26.4.2010 kl. 17:58
Var einhver virkilega svo vitlaus að halda að Nornin og Nágrímur ætluðu að bjarga einhverjum öðrum en sjálfum sér og þeim sem þeim sem drífa Samspillinguna og Vinstri Geðveilu.
Fyrst skyldi koma bondum á Sjálfstæðisflokk og kenna Daó um allt.
Svo skyldi séð um Jón ræfilinn því að hann og gamli faðir hans í Bónus hafa löngum nýst Norninni.
Svo kemur að gömlu kommunum sem fengu að skíta uppá bak í viðræðum við UK og NL.
Að síðurstu kemur svo að sauðsvörtum almúganum.... nema þá eru hvorki peningar né vilji fyrir hendi!
Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 26.4.2010 kl. 18:13
Úff já, þannig ætlar það að vera greinilega
Ragnheiður , 26.4.2010 kl. 18:32
Nei, nei, auðvitað kemur mér ekkert við hvað hinn æruverðugi innheimtumaður vildi þér, meinti það ekki þannig, en ég þekki talsvert til leigubransans og veit að það er ekki gæfulegt ástandið þar
Elísabet (IP-tala skráð) 26.4.2010 kl. 20:04
já nákvæmlega- menn hafa einhvernveginn lafað (og konur) en það verður ekki mikið lengur ..Tók þessu ekki sem svoleiðis hnýsni heldur fannst mér þessi spurning hafa alveg rétt á sér
Ragnheiður , 26.4.2010 kl. 20:14
Ég held að það hafi aldrei annað staðið til en að við almenningur borguðum brúsann. Því miður.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 27.4.2010 kl. 00:36
ég er hugsi, og halla undir flatt.
Jóhanna Magnúsdóttir, 27.4.2010 kl. 07:05
Hugsa stundum eins og við séum stödd i þríhyrningi og á okkur er þrýst af öllum hliðum. Hlið A hækkar alla þjónustu og vörur, hlið B hækkar skattana og allt annað sem þarf að hækka eða lækka, hlið C eru lánin okkar sem belgjast út af hliðum A og B. Það endar með því að við getum ekki lifað í þríhyrningnum okkar því það þrýstir svo á okkur af öllum hliðum.
Knús og klús
Kidda, 27.4.2010 kl. 19:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.