Góður dagur

enda hitti ég afar hamingjusaman frænda áðan, hann kom hér í fylgd móður sinnar til að sýna frænku bílinn sinn nýja. Strákur fær prófið 23 nóvember og hann er lengi búinn að telja dagana. Það birtir alltaf yfir öllu þegar þessi yndislegi sólargeisli birtist.

Steinar grunnaði nýja gluggann og það er allt annað að sjá hann. En ég þarf greinilega að mála einn stofuvegginn aftur. Kelmundur á til að elta ljósið um allt og upp alla veggi líka. Hann er búinn að sleikja vegginn þannig að hann er allur skellóttur fyrir ofan sófann. Asnaprik hann Keli.

Keli segir að mér hafi bara sjálfri verið nær að mála ekki með hærra gljástigi!

Ég á ekki von á að vera nógu dugleg að blogga til að halda athygli ykkar í vetur. Ég hef tekið nokkur skref fyrir sjálfa mig og þessi bloggsíða lenti utangarðs í skipulaginu. Það er auðvitað gangur lífsins, bloggarar koma og fara.

Ég fer þó líklega ekki lengra en það að í mig næst í emaili -en kannski ekki endilega samdægurs.

Munið ; Þolinmæði er dyggð

(fliss)

Farin- bæ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Þolinmæði þrautir vinnur allar sagði mamma oft við mig og ég mundi það þegar ég las síðustu orðin í þessu bloggi.

Frændi þinn er eflaust duglegur ungur maður, Hann er búinn að eignast bílinn strax. Til hamingju með þennan frænda. 

Kelmundur, það finnst mér smellið  nafn.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 14.9.2008 kl. 16:11

2 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Við fyrirgefum þér vitanlega. Samt væri ósköp gaman ef þú kíktir inn öðru hverju svona rétt til að segja hæ.

Helga Magnúsdóttir, 14.9.2008 kl. 16:42

3 Smámynd: Einar Indriðason

Mundu hver á að vera í 1. sætinu.  Þú sjálf!  Ef þú minnkar bloggið hérna, til þess að byggja þig sjálfa upp... það er allt í lagi, við munum fyrirgefa þér það :-)

Svo er það hann Kelmundur... þú þarft að stranglega að banna honum að sleikja ljósastaura í frosti! 

Einar Indriðason, 14.9.2008 kl. 16:47

4 Smámynd: Ragnheiður

Hann Kelmundur er kallaður ýmislegt og ansar öllu. Hann heitir fullu nafni Kelmundur Knúsibolla Steinarsson.

Einar, ég reyni að sýna honum hvað gerist ef maður sleikir ljósastaur í frosti

Ragnheiður , 14.9.2008 kl. 17:05

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 14.9.2008 kl. 17:20

6 Smámynd: Helga skjol

Helga skjol, 14.9.2008 kl. 18:17

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 14.9.2008 kl. 19:26

8 Smámynd: Erna

 Hafðu það gott Ragga mín og gangi þér vel

Erna, 14.9.2008 kl. 20:26

9 Smámynd: Sigrún Óskars

gott að þú hugsir fyrst og síðast um sjálfan þig. en samt gaman ef þú kemur stundum inn og bloggar - þú ert svo ansi skemmtileg.

veit af þér í næsta húsi  knús yfir.

Sigrún Óskars, 14.9.2008 kl. 22:30

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þú átt alltaf alla mína athygli! Ég er ánægð með að þú ert að taka þessi skref fyrir þig og vita skaltu að mér kemur til með að þykja jafnvænt um þig hvort sem þú skrifa einu blogginu meira eða minna

Hrönn Sigurðardóttir, 14.9.2008 kl. 22:33

11 Smámynd: Ragnheiður

Þið eruð mestu krúttin, það er alveg ljóst..Flottustu vinir sem hægt er að hugsa sér.

Ragnheiður , 14.9.2008 kl. 22:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband