Regluverk

Við notum allskyns reglur til að halda fólki í skefjum. Í aldanna rás hefur kirkjan til dæmis bannfært fólk og brennt á báli fyrir minnstu sakir. Enn í dag er Vatikanið úti á rófu með tíðarandann hvað varðar mörg sjálfsögð réttindi. Kirkjan veifar elstu siðareglum sem til eru, boðorðunum tíu. Þau eru auðvitað ágæt til síns brúks.

Algengt er að fólk fer bara eftir þeim reglum sem henta þeim, fólk ekur of hratt -fólk hefur með sér meira en það má að utan-fólk er með háreysti eftir eðlilegan hvíldartíma-fólk hendir rusli og sprænir um allt. Fólk brýtur þessar reglur án þess að hika. En ef það er hinumegin glæpsins þá er annað hljóð. Hver vill verða fyrir bíl sem ekur of hratt ? Fólk vill hreint ekki borga sekt fyrir ólöglegt magn inn í landið af góssi. Engum finnst varið í að geta ekki sofið vegna hávaða. Ég þekki heldur engan sem hefur gaman að því að tína upp rusl á lóð sinni eða bera út vatn til að skola burt hland.

Ekki gera öðrum það sem þú villt ekki að þér sé gert.

Þetta er eina reglan sem er nothæf að mínu mati og á næstum alltaf við.

Hvað veldur því að mannskepnan telur sig geta valið sjálf hvaða reglur eigi að gilda og hverjar ekki ? Hvað er að gerast í hausnum á aðila sem ekur bifreið blindfullur ? Hann telur sig kannski vera  algert meistaraverk, að hann þjáist hreint ekki af dómgreindarbresti þeim sem einkennir ölvaða ? Sjálfsálit er af hinu góða en stundum er það nú einum of hátt.

Ég hef alveg brotið reglur, að vísu ekki þessa um að koma með eitthvað góss með mér frá útlöndum, hef aldrei farið til útlanda. (næs seif hehe) Hitt hef ég allt gert á einhverjum tímapunkti nema ekki ekið undir áhrifum. Ég þyrfti þá að læra að drekka brennivín fyrst, og mér finnst það ekki til neins héðan af.

Hvað þarf að gera til að fólk hagi sér betur ?

bytta


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þessi regla, komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig, er gulls ígildi.  Þegar ég las færsluna áttaði ég mig á einu.  Á síðustu helgi fór ég að skoða Dettifoss.  Nú, þar sem ég stóð þarna úti í náttúrunni, þurfti ég að pissa.  Án þess að hugsa gekk ég bakvið stóran stein og pissaði.  Þetta er víst ólöglegt !  En mér svo eðlilegt.  Gæti verið að reglurnar séu orðnar of margar ?  Það er vel skiljanlegt að ekki sé ætlast til að pissað sé í húsagarða.... en hverjum gerir maður mein með því að pissa úti í guðsgrænni náttúrunni ? 

Anna Einarsdóttir, 1.7.2008 kl. 11:25

2 Smámynd: Ragnheiður

Þetta er lögreglusamþykkt Reykjavíkur sem fólk er að brjóta gegn. Dettifoss er í öðru umdæmi, ég var heldur ekki að meina svoleis pisserí hehe

Ragnheiður , 1.7.2008 kl. 11:28

3 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Það væri sko gaman að lifa ef allir lifðu eftir þessari reglu. Ég held að það séu ennþá ákvæði í lögreglusamþykkt Reykjavíkur varðandi umferð hesta í borginni. Kannski að það þurfi að fara að endurskoða hana?

Helga Magnúsdóttir, 1.7.2008 kl. 13:18

4 identicon

Já þetta er regla sem ekki nógu margir taka til sín.

Sammála þér með ölvunarakstur...eins með hraðakstur, maður er hvergi óhulltur að keyra með börnin sín þótt allit séu kyrfilega festir og öruggir á 90 á þjóðvegi til dæmis....þú veist aldrei hverjum þú mætir...sorglegt:(

Svala Breiðfjörð Hauksdóttir (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 13:57

5 Smámynd: Hulla Dan

Sammála, sammála.

Hulla Dan, 1.7.2008 kl. 17:44

6 Smámynd: Sigrún Óskars

Þessi regla er eiginlega "gullna reglan".

En eru ekki stríð og styrjaldir gjarnan út af trúarbrögðum?

Sigrún Óskars, 1.7.2008 kl. 17:47

7 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Já betra að hafa fáar reglur og fara eftir þeim heldur en margar og brjóta þær.

Eyrún Gísladóttir, 1.7.2008 kl. 22:09

8 Smámynd: Linda litla

Linda litla, 2.7.2008 kl. 00:39

9 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

 Gullna reglan er alltaf í góðu gildi

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.7.2008 kl. 01:37

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 2.7.2008 kl. 01:43

11 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 2.7.2008 kl. 02:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband