Gott kvöld

Hef nú ekki frá neinu stórmerkilegu að segja en hef myndir til að montast með. Horfði á Hinrik 8 part 2 í sjónvarpinu í gær og það vakti mestu lukkuna hjá mér að sjá hvað Steinar var hneykslaður á þessum kóngi, Steinari fannst hann koma illa fram við kerlur sínar.

En söfnunin fyrir bílnum hennar Öldu er komin í 31000. Bestu þakkir til þeirra sem hafa lagt okkur lið í þessu, það eru bara nokkrir dagar eftir áður en við hættum.

En hérna koma myndir

patrekur og vignirÞessir tveir eru barnabörnin mín, Patrekur Máni og Vignir Blær. Svo flottir guttar, báðir verða 6 ára í júlí.

Vignir að hjálpa litla bróðurHérna nýtur litli bróðir aðstoðar Vignis stóra bróður síns við akstur á kappakstursbíl. Áhuginn leynir sér ekki hjá þessum litla snáða. Hann ætlar að koma til ömmu sinnar annað kvöld meðan foreldrarnir skreppa í bíó. Amma hlakkar til að knúsa hann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Mér finnst nú hálfskrítið að þú sért svona margra barna amma.  Og þú sem ert á mínum aldri.     En fallegir eru þeir og Hilmar algjör bræðingur. 

Anna Einarsdóttir, 30.6.2008 kl. 20:36

2 Smámynd: Ragnheiður

Hehe já ég náði ekki alveg að verða fertug áður en þeir stórhöfðingjar mætti í heiminn með 20 daga millibili árið 2002. Þeir eru allir þrír yndislegir guttar.

Ragnheiður , 30.6.2008 kl. 20:40

3 identicon

Búin

Knús og klús

Kidda (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 21:22

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þetta eru dásamleg börn Ragga mín.

Knús á þig.

Kristín Katla Árnadóttir, 30.6.2008 kl. 21:56

5 Smámynd: Tiger

 Það er ekki að spyrja af því mín kæra - yndislegir pjakkarnir þínir þarna. Sá litli er algert rassgat sko - með fullri virðingu. Skil vel að það sé tilhlökkun í þér að fá kútinn annaðkvöld og knúsast í honum!

Knús á þig mín elskulegasta og hafðu ljúft kvöldið ..

Tiger, 30.6.2008 kl. 22:13

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Yndislegar myndir. 

Hinrik var auðvitað ekkert annað en bölvaður heimilisofbeldismaður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.6.2008 kl. 23:57

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Einhverjar bjöllur fóru að klingja hjá mér núna.  Ef Patrekur Máni er sonur Hjördísar, máttu skila góðri kveðju frá mér (mömmu Jóns Erics).

Þau eru flott barnabörnin þín Ragnheiður.

Sigrún Jónsdóttir, 1.7.2008 kl. 00:23

8 Smámynd: Ragnheiður

Jón Eric já ég hef áreiðanlega heyrt hana tala um hann, hún les áreiðanlega kveðjuna frá þér Sigrún mín.

Ragnheiður , 1.7.2008 kl. 00:35

9 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Flottir litlu strákarnir þínir allir þrír

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 1.7.2008 kl. 00:39

10 identicon

Búin að lesa kveðjuna :) Fattaði nú ekkert að þetta væri þú. Kveðja til baka

Hjördís Edda (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 00:43

11 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Lítill heimur - lítill bloggheimur, gaman að þessu.

Sigrún Jónsdóttir, 1.7.2008 kl. 00:48

12 Smámynd: Steinunn Ósk Steinarsdóttir

Það væri nú gaman fyrir Emilíu að fá að prakkarast einhvern tímann með "frændum" sínum :) Eða vefja þeim um fingur sér eins og virðist vera með strákana hér í götunni *fliss*

Steinunn Ósk Steinarsdóttir, 1.7.2008 kl. 01:08

13 identicon

Já Steinunn ef einhver getur vafið Patreki um fingur sér þá væri það vel þegið!  Það væri gaman að sjá það og fá jafnvel smá kennslu. Bölvað stjórleysi á kvikindinu

Hjördís Edda (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 02:51

14 Smámynd: Steinunn Ósk Steinarsdóttir

eitthvað kannast ég við þetta orð... stjórnleysi...    ahh já það er dóttir mín ;) Hún er það sem gæti kallast SA-VA-KALEG stundum!!

Steinunn Ósk Steinarsdóttir, 1.7.2008 kl. 13:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband