Hitt afmælisbarnið

hitt afmælisbarnið

síðan 17 október vann heimsmeistaratitil í formúlunni áðan. Mér er bara svo illt í hausnum að mér er til efs að ég skrifi mikið um þennan árangur afmælisfélaga míns. Kannski er mér illt í hausnum vegna þess að ég er með kvenkynsheila og var að horfa á kallaíþrótt...ja kona spyr sig.

Af sömu orsökum er gluggamálun frestað, verkjatöflur úr einkavæddu apóteki virka ekki. Slaghamarinn er tilbúinn ef allt annað þrýtur !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fjóla Æ.

Ja, ef Formúlan er strákasport þá hún augljóslega skýringin á höfuðverknum en ef hún er það ekki þá gæti það kannski verið vegna fyrirfram hugsaðar lyktar af málningunni.

Og ekki segja að málning geti verið lyktarlaus. Hún er það ekki.

Fjóla Æ., 21.10.2007 kl. 18:33

2 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Kamillute og hunang, allra meina bót, gott teppi eða sæng og kúra.

Guðrún Jóhannesdóttir, 21.10.2007 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband