Æj

Þessi er tekin af www.visir.is

Ég er kannski ekki mjög kristilega þenkjandi en ég hló að þessu Blush

Eftir tólf bjóra þótti Matt Martin tími til kominn að fá sér sundsprett. Matt er frá Newcastle í Bretlandi, en var í sumarfríi í Queensland í Ástralíu. Matt tók gott tilhlaup og stakk sér út í vatnið. Beint ofan á stóran krókódíl.

Króksi kunni þessu frekar illa og reyndi að borða Matt. Matt barðist hinsvegar um á hæl og hnakka og tókst að skreiðast á landi. Skildi þar með þeim króksa.

Matt var talsvert laskaður í framan. En ölið var ennþá í honum, svo hann bara lagði sig og fór að sofa. Eftir nokkurra klukkustunda svefn voru verkirnir hinsvegar orðnir svo miklir að hann vaknaði og druslaðist loks á sjúkrahús, þar sem hann var saumaður saman.

Veiðivörður í Queensland sagði; "Að drekka áfengi og fara svo að synda er slæm hugmynd. Að stinga sér út í vatn fullt af krókódílum er enn verri hugmynd."



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Þessi (Matt) hefur greinilega verið búinn að drekka nóg.

Eiríkur Harðarson, 21.10.2007 kl. 00:43

2 identicon

Mig langaði bara að benda þér á þessa síðu :) www.123.is/valasvala. Lítil stelpa sem berst við hvítblæði :(

Hanna (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 01:37

3 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Hahaha,sá hefur drukkið of mikið og króksa varð af vænum bita æææ.

Magnús Paul Korntop, 21.10.2007 kl. 04:33

4 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Sunnudagur til sælu fyrir þig

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 21.10.2007 kl. 11:18

5 Smámynd: kidda

Aumingja króksi að hafa tapað af snakkinu sínu. Snakkið lætur sér þetta vonandi að kenningu verða og hugsar sig tvisvar um áður en hann framkvæmir svona hugdettur

Knús og klús fyrir daginn

kidda, 21.10.2007 kl. 11:42

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Þetta er nú með þeim betri sem ég hef heyrt lengi...

Aumingja króksi að missa af snakkinu!

crockodile

Greta Björg Úlfsdóttir, 21.10.2007 kl. 12:24

7 Smámynd: Huld S. Ringsted

ÚFF!! kallgreyið! hann lætur sér þetta kannski að kenningu verða og drekkur minna næst

Huld S. Ringsted, 21.10.2007 kl. 12:31

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Aumingja krókódíllinn.  hehehehe..

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.10.2007 kl. 12:39

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þetta sannar bara regluna um að best er að láta vínið eiga sig
því það á enga vini, og að sjálfsögðu ekki krógólíla
Enn það var gott að hann slapp greyið. sko eftir að hann fór að sofa, Krókódíllinn hefði nú getað skriðið á land.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.10.2007 kl. 14:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband