Blöðin lesin með hryllingi þennan morguninn

Fólk kastaði gangstéttarhellum að lögreglunni. Ég var hinsvegar ekki á staðnum og vísa ykkur áfram á www.skessa.blog.is . Hún var þarna og veit hvað var í gangi. Hún hefur staðið friðsama mótmælavakt og það er henni að þakka ásamt fleirum friðsömum mótmælendum að breytingar virðast vera í farvatninu, sem betur fer.

Dagurinn hér byrjaði hinsvegar á morði. Við myrtum ekki lögreglumann né mótmælanda. Músarræfillinn var kominn á límborðann og henni var fyrirkomið snyrtilega, en ekki með neinu nema óbragði í munni. Við erum ekki morðóð hér. Líkinu var skutlað í tunnuna og ruslakallar komu stundvíslega hálftíma síðar og fjarlægðu glæpinn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Til hamingju með þetta.  Kisa mun vonandi sjá til þess að ekki komi fleiri óvelkomnir gestir í húsið.

Sigrún Jónsdóttir, 22.1.2009 kl. 11:14

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jæks! Ef það er eitthvað ógeðslegra en mús í húsi þá er það dauð mús í húsi.....

Til lukku með að vera laus við músarskömmina. 

Hrönn Sigurðardóttir, 22.1.2009 kl. 11:17

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Fékk svona heimsókn í fyrra en hundurinn fann hana þar sem hún hékk aftan á borðstofuskápnum.  Jessús, langar ekkert í svona heimsókn aftur.

Ía Jóhannsdóttir, 22.1.2009 kl. 12:13

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þá er músarræfillinn allur. Það hlýtur að vera fagnaðarefni á heimilinu, ég vona að Trítla myndi afgreiða málið ef við fengjum svona gest.

Helga Magnúsdóttir, 22.1.2009 kl. 12:28

5 Smámynd: Ragnheiður

Ég er ekki svo heppin Helga, þessi var lítil og svört. Það er greinilega greið leið inn fyrir mýs hjá mér og við því verður brugðist í sumar. Þær komast greinilega upp með klæðningunni og inn í gamla þvottahúsið.

Rats !

Ragnheiður , 22.1.2009 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband