Sjálfstæðisflokkinn vantar PR manneskju !

Sjá þetta viðtal ;

Allar fasteignir yfir á konuna

Sigrúnu Björk Jakobsdóttir.
Sigrúnu Björk Jakobsdóttir.
Jón Björnsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norðlendinga, færði allar fasteignir sínar yfir á eiginkonu sína Sigrúnu Björk Jakobsdóttur, fyrrverandi bæjarstjóra á Akureyri. Málið hefur verið rætt innan raða Sjálfstæðisflokksins á Akureyri að frumkvæði Sigrúnar Bjarkar.

Jón gegndi stöðu sparisjóðsstjóra hjá Sparisjóði Norðlendinga á árunum 1997 til 2005 en sparisjóðurinn sameinaðist Byr sparisjóði árið 2007. Kona hans er Sigrún Björk Jakobsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri og oddviti Sjálfstæðismanna í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Hjónin gerðu með sér kaupmála þann 23. nóvember síðastliðinn, daginn áður en starfsmenn sérstaks saksóknara framkvæmdu húsleit í höfuðstöðvum Byrs. Þar eru allar fasteignir Jóns færðar yfir á eiginkonuna, tæplega þrjú hundruð fermetra einbýlishús þeirra á Akureyri er nú eingöngu skráð á Sigrúnu en fasteignamat hússins er tæpar 34 milljónir króna. Þá er helmingshlutur Jóns í annarri fasteign á Akureyri einnig komið á nafn eiginkonunnar en húsnæðið var áður í eigu Sparisjóðs Norðlendinga.

Sömu sögu er að segja um helmingshlut í 3,7 hektara landskika í Hörgárbyggð, sem og fjórðungshluta í sumarhúsi í Ölfusi. Ennfremur er eignarhlutur Jóns í hlutafélagi kominn yfir á nafn konunnar og sérstaklega tilgreint í kaupmálanum að bankareikningur Sigrúnar sé séreign hennar ásamt þeirri innistæðu sem þar kann að vera á hverjum tíma. Sigrún Björk neitar því harðlega að með kaupmálanum hafi hjónin verið að koma undan eignum. 

„Mér finnst það með hreinum ólíkindum að vera í viðtali út af þessu fyrir hið fyrsta. Að þetta skuli vera samfélagið sem við erum að kalla yfir okkur finnst mér vera með hreinum ólíkindum. Þetta er gert til að upplýsa. Þetta er lögformlegur gjörningur á milli okkar hjóna, fyrst og fremst til að hafa allt á hreinu,“ segir Sigrún sem vill ekki gefa upp skuldastöðu eiginmanns síns. „Hann á nægar eignir til að standa fyrir öllum sínum skuldbindingum og meira til.“ Sigrún segist hafa gert grein fyrir málinu á fundi Sjálfstæðisflokksins um daginn. „Ég hafði frumkvæði að því, af því að ég hafði orðið vör við þær sögusagnir sem hér geysa. Sem mér finnst vera miður. Því ég tel mig hafa unnið af einurð og heiðarleika í öllum mínum störfum og þetta eru einfaldlega ofsóknir sem eru spunnar af illum rótum.“

 

 

frettir@ruv.is

°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°

Ég undirstrika það sem mér finnst athugaverð við orð hennar. Hroki hefur aldrei orðið neinum manni til framdráttar. Virðing stjórnmálamanna er ekki lögmál, það er eins og hjá okkur öllum hinum- áunnið. En það er eins og brothætt blóm, ansi fljótt að sjúskast og skemmast.

Fyrrum bæjarstýra á Akureyri þarf að treysta á gullfiskaminni kjósendanna- ekki getur hún stólað á að borin sé virðing fyrir henni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við vitum vel hvað er í gangi hjá fólki sem saup af spillingunni... eftir einn sopa af spillingu þá verða menn alltaf spilltir.. mega alls ekki vinna við neitt sem krefst ábyrgðar og heiðarleika... alveg eins og róni í strætinu myndi pottþétt falla aftur ofan í flöskuna ef hann færi að vinna á bar.

DoctorE (IP-tala skráð) 4.5.2010 kl. 12:33

2 Smámynd: Ragnheiður

Já við vitum það- hversu margir munu samt kjósa þetta fólk áfram ? Fylgjumst með því !

Ragnheiður , 4.5.2010 kl. 12:46

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það er endalaust að koma meira og meira upp á yfirborðið.

Væri ekki fljótlegra að telja upp heiðarlega fólkið - mig og þig ? 

Anna Einarsdóttir, 4.5.2010 kl. 14:30

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góð færsla hjá þér Ragnheiður mín og er algjörlega sammála.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.5.2010 kl. 16:37

5 Smámynd: Kidda

Er þetta virkilega svona auðvelt. Eiga hjón bara að skoða hvort þeirra er öruggara og gera kaupmála sem gildir um allar eigur hjónanna. Gaman væri að vita hvernig svona dæmi færu ef til skilnaðar kæmi

Ég er búin að fá upp í kok af fólki eins og henni

Kidda, 4.5.2010 kl. 17:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband