Gleðilegt ár

og við Himmi sendum ykkur hjartans þakklæti fyrir árið sem er að líða. Ég segi við Himmi vegna þess að ég vil reyna að trúa því að hann sé að skottast hér í kringum ræfilinn hana mömmu sína.

Þið hér, lesendur, hafið verið mér ómetanlegur styrkur á ári sem á ekki sinn líka, ja amk ekki síðan 1984. Árið áður en Himmi minn fæddist. Þá vissi ég ekkert afhverju ég var að missa með því að eiga hann ekki.

Nú veit ég það

Söknuðurinn er mikill.

Megi árið 2009 verða ykkur öllum gleði og gæfuríkt, uppfullt af skemmtilegum atburðum.

Nú legg ég upp í leiðangur, inn í næsta ár, sem verður jafn hörmulega Himmalaust en þó mun kjarkbetri en á svipuðum tímamótum fyrir ári síðan.

hilmar (2)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elsku hjartans vina mín. Ég hugsa aldrei um þig án Himma né Himma án þín, þið eruð að eilífi í hjarta mínu. Hafðu það sem allra best og vona að voffarnir litlu verði rólegir í kvöld.  Kveðja á Steinar og alla sem hjá ykkur verða. Kærleikur

Ásdís Sigurðardóttir, 31.12.2008 kl. 18:33

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Gleðilegt ár ljúfust mín

Hrönn Sigurðardóttir, 31.12.2008 kl. 18:43

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Anna Einarsdóttir, 31.12.2008 kl. 20:13

4 Smámynd: Tiger

 Hann er með þér strákurinn Ragnheiður mín - you can bet on that for sure! Ég sendi þér líka áramótakveðju elskulegasta skottið mitt ...

Risastórt væntumþykjuknús!

Knús! --->(((((((((((((Ragnheiður))))))))))))<--- !súnK

Tiger, 31.12.2008 kl. 20:46

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Gleðilegt ár elsku Ragga mín

Huld S. Ringsted, 1.1.2009 kl. 01:07

6 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Gleðilegt árið elsku Ragga mín og takk fyrir það liðnaknús á þig og þína og farðu vel með elsku vina mín

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 1.1.2009 kl. 01:26

7 Smámynd: Einar Indriðason

Ragga mín... Nú færðu svona svolítið meyrt knús frá mér... áramótin eru alltaf tími þar sem gamlar minningar eru rifjaðar upp, í bland við nýjar væntingar.

Ég ætla að elta venjuna samt, og segja:  Gleðilegt nýtt ár!

(Veit ekki hvort ég get úthlutað lopapeysuknúsi núna, mér er hálfkalt eftir að hafa staðið úti áðan, í ekki alveg besta kuldagallanum.  En, ég skal hafa lopapeysuna til staðar... svona just in case.)

Einar Indriðason, 1.1.2009 kl. 02:05

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

  Knús á þig og Himma, Ragga mín

Sigrún Jónsdóttir, 1.1.2009 kl. 02:39

9 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Gleðilegt ár Ragga mín, takk fyrir gamla árið. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 1.1.2009 kl. 03:20

10 Smámynd: Sigrún Óskars

Gleðilegt ár og takk fyrir gamla, allt sem þú hefur gefið mér í gegnum bloggið þitt. Knús til þín og fjölskyldunnar   Himmi fær ljós  og ég trúi því líka að hann skottist í kringum þig.

Sigrún Óskars, 1.1.2009 kl. 17:29

11 Smámynd: Mummi Guð

Gleðilegt ár

Mummi Guð, 1.1.2009 kl. 19:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband