Nágrannar

eru ágætir.

Minn liggur nú um stundir undir feldi.

Þjóðin bíður í ofvæni.

Ég er bara mest að hugsa um að honum verður þó allaveganna ekki kalt á meðan.

Hugsa jákvætt

Ekki ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Honum er vorkunn að vera í þessari stöðu.

Ekki vildi ég vera forseti. 

Anna Einarsdóttir, 3.1.2010 kl. 19:40

2 Smámynd: Ragnheiður

Nei segi það með þér.

Tala um að vera á milli steins og sleggju!

Ragnheiður , 3.1.2010 kl. 19:43

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

hann gæti sagt af sér..............

Hólmdís Hjartardóttir, 3.1.2010 kl. 21:20

4 Smámynd: Ragnheiður

Hólmdís mér bara datt það ekkert í hug, það er líklega eina leiðin frá sleggjunni ?

Ragnheiður , 3.1.2010 kl. 21:28

5 identicon

Honum leiðist ekki athyglin,segja af sér þó fyrr hefði verið.Hann skrifar undir enda vinstri maður og það er það sem virðist stjórna pólitíkusum .Flokkurinn en ekki skynsemin.Svona er þetta hjá þeim öllum því miður.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 3.1.2010 kl. 23:06

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég er sammála Hólmdísi hann gæti sagt af sér

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 3.1.2010 kl. 23:08

7 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð

Vona að nágranna þínum líði ágætlega. Þetta er bara leikrit hjá honum. Hann skrifar undir. Bregst ekki flokksfélögum sínum.

Megi almáttugur Guð miskunna okkur.

Guð veri með þér

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 4.1.2010 kl. 02:28

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á þig Ragnheiður mín. Við skulum bara biðja almættið um að all fari á besta veg fyrir okkur öll.  Knús á þig elskuleg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.1.2010 kl. 11:05

9 Smámynd: Kidda

Geri orð Cesil að mínum

Knús og klús

Kidda, 4.1.2010 kl. 11:17

10 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Brilljant færsla Ragnheiður!   Atómljóð aldarinnar

Jóhanna Magnúsdóttir, 4.1.2010 kl. 13:33

11 Smámynd: Sigrún Óskars

kemur allt í ljós klukkan ellefu á morgun ......

Sigrún Óskars, 4.1.2010 kl. 21:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband