Fór í fýlu!

Skýring hér :

Lopapeysur ófáanlegar í landinu

Lopapeysur ófáanlegar í landinu

Handprjónaðar lopapeysur eru ófáanlegar hjá helstu framleiðendum landsins. Lítil endurnýjun í greininni og mikil söluaukning meðal ferðamanna skýrir skortinn.

Kona í Hveragerði komst að raun um þetta þegar hún ætlaði að kaupa lopapeysur til að selja í nýrri búð sem hún hyggst opna á næstunni. Hún hefur leitað víða en hvergi fást peysur. Á vegum Handprjónasambands Íslands prjóna vel á annað hundrað konur hundruð peysa á mánuði en það dugir ekki til.

Bryndís Eiríksdóttir framkvæmdastjóri sambandsins bendir á að gríðarleg söluaukning hafi orðið meðal ferðamanna. En að minnsta kosti 8500 peysur voru keyptar frá september í fyrra til janúar á þessu ári í þeim búðum sem selja eingöngu ullarvörur.

Langt yfir tíu þúsund peysur hafa þá líklega selst síðan í haust. Bryndís segir að konur í eldri kantinum sjái að mestu um framboð og endurnýjun í greininni sé ekki mikil, fólk sinni lítið prjónaskap nú til dags.

°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°

enn reyklaus og hef það fínt. Á á lager nokkrar peysur og það má hafa samband í emailum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, skrýtið er þetta með lopapeysurnar!

Glæsilegt hjá þér með reykleysið, þú segist hafa það fínt, þá líður þér náttúrulega vel og ert ekkert á fremsta hlunni að byrja aftur - frábært!

Kær kveðja

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 20.2.2009 kl. 21:32

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahah "konur í eldri kantinum"

Hrönn Sigurðardóttir, 20.2.2009 kl. 21:40

3 Smámynd: Auður Proppé

Ja hérna, ég ætti kannski að fara að prjóna lopapeysur á fleiri en fjölskylduna   Þú verður bara að prjóna hraðar Ragga mín.  Þú stendur þig frábærlega vel í reykleysinu mín kæra

Auður Proppé, 20.2.2009 kl. 22:13

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Það eru yfir 15.000 manns atvinnulausir, kannski væri lausn fyrir einhverja þeirra að læra að prjóna.  Það er verst hvað tímakaupið við það er lélegt. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.2.2009 kl. 23:16

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Áfram í reykleysi með peysur á prjóninum.

Á maður að fara að fá sér lopa?  (sko peysu, ekki garn).

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.2.2009 kl. 23:43

6 identicon

Gott hjá þér með reykleysið

Mér hefur skilist að ullin heilli alltaf túristana meira en aðrir listmunir, kannski vegna þess að ullarverkin eru ekki unnin á góðu tímakaupi. Það mætti nú alveg skoða það mál. Þegar ég var hérna um árið (langt síðan) að selja hjandverk í túristabúðum þá fékk ég 250kr á tímann þegar það var almennt 5-700 á tímann hjá lægst launuðu.

Knús og klús 

Kidda (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 11:17

7 identicon

Ha????? ELDRI KANTINUM?????????????Ég prjóna peysurlopapeysur

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 12:54

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hahahahhahaah

Guðríður Haraldsdóttir, 21.2.2009 kl. 13:05

9 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og kveðjur:=)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 21.2.2009 kl. 22:25

10 Smámynd: Sigrún Óskars

ekki vera í fýlu - það eru ekki bara eldri konur sem sjá um að prjóna peysurnar, það eru líka ungar eins og þú

dugnaðarforkur ertu svona reyklaus - ég er stolt af þér

Sigrún Óskars, 21.2.2009 kl. 22:50

11 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ía Jóhannsdóttir, 22.2.2009 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband