ég skoðaði þetta vel áðan

þetta er ekki eins óvinnandi verk og ætla mætti. Það er frekar einfalt að skoða þessar rúmlega fimmhundruð sálir. En vefurinn virkar ekki betur en svo að í seinni hlutanum, smelli maður á nánar, þá kemur bara upp gluggi sem stendur á úps eitthvað klikkaði.

Ég er búin að velja sautján frambjóðendur, finna nokkra sem ég kysi ekki sama hvað en ég þarf að finna átta í viðbót. Hafið þið einhverjar góðar uppástungur og afhverju ?


mbl.is Frambjóðendur kynntir á vefnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kidda

Ég er ekki einu sinni farin að skoða þetta dæmi, veit um 3 aðila sem ég treysti og á þá eftir að finna 22stk.

Knús og klús

Kidda, 3.11.2010 kl. 21:33

2 Smámynd: Sigrún Óskars

ég hef ekkert skoðað þetta - þyrfti að byrja á þessu

Sigrún Óskars, 4.11.2010 kl. 00:15

3 identicon

ég er búin að finn 3 en verð að skoða þetta betur

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 4.11.2010 kl. 13:25

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Það þarf ekkert að fylla "kvótann" í þessum kosningum, bara kjósa í.þ.m. einn og mest 25

Sigrún Jónsdóttir, 4.11.2010 kl. 16:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband