skordýrafræðingur !

eða eitthvað.

Hvað er að birkitré sem verður svona ?

tré og fleira 001

Þetta er eins og eftir spuna, þegar verst lét þá var ekki grænt blað á trjánum hér. Svo hreinsaðist þetta af og trén eru ágæt nú. Mér dettur í hug einhverskonar fiðrildalirfur ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er þetta ekki ryðsveppur sem leggst á ýmsan gróður? mér dettur það helst í hug.

Ásdís Sigurðardóttir, 31.7.2009 kl. 19:08

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Ragnheiður mín þetta eru fiðrildalirfur sennilega haustfeti.   Hann vefur sig inn í blöðin og étur þau svo í rólegheitum ótruflaður.  En það er hægt að nota permasect á hann, það er eitur og má alls ekki fara í niðurföll eða vötn, þar sem það er algjört skaðræði í vatnsríkinu drepur öll dýr með kalt blóð.  Það er hálf kerfisvirkt og situr lengi á blöðunum, þannig að það virkar vel.  En annars er alltaf best að hafa plönturnar í góðu ástandi, þá hrinda þær betur af sér svona ásókn, vökva vel og bera á helst reglulega í maí júní og fram til 15 júlí, eftir það er má ekki bera áburð á, vegna þess að upp úr því fara plönturnar að vetra sig og ljúka vexti.  Þú getur samt bjargað heilmiklu með því að láta liggja vatn á plöntunni.  Þó það rigni svolítið, þá gerir það sára lítið ef jarðvegurinn er orðin þurr.  Þú getur líka bjargað heilmiklu með því að nota grænsápu snemmsumars, það þarf að nota þessa sem er ekki blönduð út, og blandan má vera sterk, grænsápan setur húð yfir brumin, svo dýrin komast ekki eins greitt út til að valda skaða. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.7.2009 kl. 19:10

3 Smámynd: Sigrún Óskars

þetta hefur líka komið í mín tré - en ég opna blöðin og gef  þessum lifrum "selbita" - svo spúla ég þau reglulega. Ég hef ekkert eitrað þetta árið, en venjulega þá eitra ég sjálf eða fæ mann sem gerir þetta á "nóinu"

Sigrún Óskars, 31.7.2009 kl. 23:26

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég eitra aldrei í mínum garði, Birkið mitt hefur aldrei litið svona illa út. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 1.8.2009 kl. 00:43

5 Smámynd: Ragnheiður

þetta kom ekki í fyrra né hittifyrra, þess vegna var ég að spyrja. Núna eru trén gullfalleg og ekkert að þeim enda lirfan farin burtu. Ég vil helst ekki eitra í garðinum.

Takk fyrir innlegg allir, ráð og álit

Ragnheiður , 1.8.2009 kl. 14:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband