Hagi hún sér svipað og

sú spænska gerði þá ættu allir að keppast við að smitast núna, það gæti valdið ónæmi fyrir henni þegar hún kemur fílelfd í haust.

Það hefði átt að borga sjúklingnum fyrir að þvælast sem mest um allt meðan hann var smitandi og hnerra og snýta sér í sem flesta bara.


mbl.is Svínaflensa á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Vandamálið er að hún getur breyst á augabragði. Smit í dag er engin vernd fyrir því sem koma skal í haust.

Finnur Bárðarson, 23.5.2009 kl. 18:00

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Allir deyja úr einhverju. Hvað hafa margir dáið úr öllum hinum flensunum? Væri ekki tilvalið að birta það í sömu frétt.

Ég get ekki haft áhyggjur af svínaflensu á meðan stór hluti heimsins deyr af völdum stríðs og græðgi.

Ég geri mitt besta og tek því sem að höndum ber eins og ég hef alltaf gert. Svo getur lyfjamafían gert það sem hún vill fyrir mér.

Svínaflensa með skjótum dauða er betra í mínum augum en myndirnar frá Gasasvæðinu sem ég sá í morgun. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 23.5.2009 kl. 20:26

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og ljúfar kveðjur.....:)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.5.2009 kl. 21:10

4 identicon

Ég held að það sé ekki gáfulegt að vanmeta flensur.

Spænska veikin er sögð hafa drepið 50-100 milljón manns, eða allt að því jafn mikið og báðar heimstyrjaldirnar.  Veikin fór einu sinni um heimin og þótti það lítil ógn að Breski herinn gerði ráð fyrir að hún myndi ekki hafa áhrif á herstyrk þeirra í styrjöldinni. Þegar veikin sneri svo aftur voru afleiðingarnar þessar dánartölur sem sumir telja að séu jafnvel of lágar.

Brynjar Björnsson (IP-tala skráð) 23.5.2009 kl. 22:28

5 Smámynd: Brynja skordal

góðan daginn Ragga mín er aðeins farinn að kíkja hér á mbl bloggið og ætla að reyna fara skrifa og vera með

Brynja skordal, 24.5.2009 kl. 10:45

6 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

innlitkvitt og knús

Guðrún unnur þórsdóttir, 24.5.2009 kl. 14:15

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Engin veit sína ævina, það er víst og satt. 

Ásdís Sigurðardóttir, 24.5.2009 kl. 17:24

8 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Kveðja inn í góða viku

Ía Jóhannsdóttir, 25.5.2009 kl. 08:39

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég er ekkert að pæla í þessari veiki sem stökkbreytist eins og maður skiptir um nærur.
Knús knús

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.5.2009 kl. 13:14

10 Smámynd: Eygló

Stunda varkárni, án taugaveiklunar.

Eygló, 26.5.2009 kl. 10:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband