Alltaf lærir maður eitthvað nýtt

Ég er komin í sumarfrí og hóf daginn á merkilegri uppgötvun. Ég vaknaði með vont tak í bakinu og hef borðað verkjatöflur í dag, í svo miklu magni að ég þurfti engan kvöldmat. Um síðdegið rann upp fyrir mér ljós, aha ! hugsaði ég. Nú veit ég hvernig framsóknarmönnum líður !! Með heilu hnífasettin í bakinu.

Þá veit ég það

En hið undarlega var að Steinar var svipað skakkur. Ég hef grun um að hér fari fram, í skjóli myrkurs, skelfilegt heimilisofbeldi. Annað hvort okkar er að lumbra á hinu og þekkjandi mínar svefnvenjur þá verður að viðurkennast að ég er mun líklegri aðilinn í næturofbeldi en Steinar. Hann á að vísu til að klípa mig aðeins þegar hann sefur ...ég hef kannski brugðist aaaaðeins of hart við ?

Njótið dagsins


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Guðrún B. (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 20:33

2 Smámynd: Erna

Njóttu lífsins í fríinu Ragga mín. Vona að bakverkurinn hverfi og að rólegra verði á næturvístöðvunum  

Erna, 18.7.2008 kl. 20:39

3 Smámynd: Erna

næturvígsstöðvunum, átti þetta að vera

Erna, 18.7.2008 kl. 20:43

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hvernig væri að láta hundinn sofa á milli ?  Hmmmmmm. 

Anna Einarsdóttir, 18.7.2008 kl. 20:58

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir kastið sem ég fékk svona fyrir svefninn, sé ykkur í anda steinsofandi, klípandi og ýtandi í hvort annað engin furða að þið séuð aum.
Knús til ykkar beggja
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.7.2008 kl. 21:33

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Hafiði skoðað bakið á hvort öðru ? - Og athugað í hnífaparaskúffuna ?  Það er vonandi að þú náir þér fljótt svo að þú fáir að njóta þess að vera komin í sumarfrí

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 18.7.2008 kl. 22:23

7 Smámynd: E.R Gunnlaugs

gott að vita að ég er ekki ein sem er líkleg til að fremja ofbeldi í skjóli svefnsins...

lukkulega þá hefur engin lennt í mér líkamlega, en móðir mín fékk ágætt sjokk þegar ég "breyttist" í úlf eina nóttina. Verst var þó þegar ég umbreytti svefnherberginu mínu í vettvang umferðaslyss...

vonandi losnar bakið við stungurnar sem fyrst :)

E.R Gunnlaugs, 18.7.2008 kl. 22:28

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Líf og fjör í hjónasæng, ekki slæmt.  Hugsa mikið til ykkar núna, ætla að kveikja ljós hjá stráknum þínum, það telur grimmt núna. Love You

Ásdís Sigurðardóttir, 18.7.2008 kl. 22:31

9 identicon

 er laumuframsóknarmaður í ykkur?Góðan bata

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 23:19

10 identicon

Vona að takið taki á það ráð að hverfa á brott hið snarasta...

Góða helgi

alva (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 23:35

11 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Skemmtu þér vel í fríinu, ég er sjálf komin í sumarfrí.  Ég var að koma heim af síðustu vaktinni minni fyrir frí.    Alltaf fjör í ykkar hjónasæng, vonandi batnar bakverkurinn fljótt og vel.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.7.2008 kl. 02:55

12 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hahhahaha, sé þetta fyrir mér. Kannski liggur þú aðeins of lengi í rúminu þar sem þú ert komin í frí? Ég sef oft lengur um helgar og uppsker þá stundum bakverki.

Batni ykkur skjótt, elskan.

Guðríður Haraldsdóttir, 19.7.2008 kl. 19:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband