Æj

Hann var nú orðinn ansi gamall sá sem fékk heiðursverðlaunin á Óskarsverðlaunahátíðinni núna, hr Boyle, hann er 98 ára gamall blessaður. Hann fékk 2 glæsilegar leikkonur sér til stuðnings og það var sett auglýsingahlé meðan þeim gamla var fylgt burt af sviðinu.

Ég er nú alveg að springa á limminu við að horfa en ætla að reyna að sjá aðeins meira. Ég er að horfa á þetta í gegnum þýska sjónvarpsrás. Ég er ekki með stöð 2.

Þessi hérna var einn þeirra sem minnst var þegar farið var yfir þá sem látist hafa síðastliðið ár.

littlehouse

Hann lést í apríl 2007 þá orðinn níræður. Hann lék í mörgum myndum og þáttum en ég minnist hans helst úr húsinu á sléttunni. Það horfðum við mamma alltaf á saman, það var bara okkar thing...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er enn vakandi yfir þessu, en er orðin rosalega syfjuð, ætla að pína mig til að bíða eftir besta leikara og leikkonu í aðalhlutverki og svo bestu bíómyndinni, vona að það fari að koma .

Ásdís Sigurðardóttir, 25.2.2008 kl. 03:48

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er hérna ennþá, en alveg búin á því.  Nú er komið að bestu myndinni, ég er spennt.

Ásdís Sigurðardóttir, 25.2.2008 kl. 04:45

3 Smámynd: Hulla Dan

Það er búið að vera að endursýna húsið á sléttunni, hérna hjá okkur núna. Vá. Í senn æðislegir, ömurlegir, hallærislegir og yndislegir.

Horfði alltaf á þá með gamla fólkinu þegar ég var á kvöldvöktum í fyrra og það fór einhver að væla yfir hverjum einasta þætti. Nema ég að sjálfsögðu, beit bara ógeðslega fast í neðri vörina.

Hulla Dan, 25.2.2008 kl. 05:32

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Varstu að meina Oskarinn fattaði þetta ekki alveg, ég er ekki með stöð 2 og  þannig að ég sé ekki neitt enda græt ég það nú ekki stórt.
Húsið á sléttunni það var nú viss grátsjarmi yfir þeim þáttum.
                    Kveðjur Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.2.2008 kl. 11:45

5 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

hefði viljað horfa líka....en þurfti að sofa..

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 25.2.2008 kl. 12:11

6 Smámynd: Ragnheiður

Ja Einar, ég veit það ekki. Kannski bara highlights eða eitthvað svoleiðis...þá helst á Star eða E!

Ragnheiður , 25.2.2008 kl. 14:05

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Húsið á sléttunni.     Sko, þegar ég var 14-15 ára var ég að vinna við bensínafgreiðslu eftir skóla ....... en ég fékk alltaf bróður minn til að leysa mig af í klukkutíma á sunnudögum svo ég gæti horft á Húsið á sléttunni.    Var maður kjáni - og er kannski ennþá !!!

Anna Einarsdóttir, 25.2.2008 kl. 17:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband