Biðin langa

Einhver hefur ýtt mér hér inn

og tekið slökkvarann.

Hér er umhorfs eins og á gömlum kamri

fjalirnar eru gisnar

Það næðir inn

en verst er birtan, villuljósið

Það lýgur mig fulla

telur mig færa um samfélag við aðra

en stígi ég skrefið í áttina

þá finn ég - kalda krumlu

hún læsist um hjartað, kremur, kremur

og ég veit

Ekkert verður aftur nothæft

Ég bíð bara áfram. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Þú ert ljóðskáld

Margrét Birna Auðunsdóttir, 21.11.2011 kl. 13:05

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er þetta frá þín hjarta komið ?

Ásdís Sigurðardóttir, 21.11.2011 kl. 15:24

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott að skrifa sig frá sorginni elsku Ragnheiður mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.11.2011 kl. 15:59

4 Smámynd: Ragnheiður

Jú ég skrifaði það - það bara samt heimtaði burt, vildi sjálfstætt líf allt í einu.

Takk elskurnar 

Ragnheiður , 21.11.2011 kl. 18:04

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er nauðsynlegt að leyfa hugsununum að fljúga sjálfstætt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.11.2011 kl. 18:48

6 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 21.11.2011 kl. 19:28

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 22.11.2011 kl. 02:49

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gott hjá þér

Ásdís Sigurðardóttir, 22.11.2011 kl. 11:13

9 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Elsku Ragga knús. þú yrkir fallega en þetta er svo fullt af sorg.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 22.11.2011 kl. 13:40

10 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ofboðslega fallegt ljóð, tilfinningaþrungið.  Ég sendi þér gleðistrauma sem þú vonandi getur nýtt um helgina.  Eigum við að baka smákökur ?

Anna Einarsdóttir, 26.11.2011 kl. 09:21

11 Smámynd: Ragnheiður

takk elskurnar...Anna mín, ég keyrði bara leigubíl og við bökum seinna ;) ég er lánsöm að eiga svona yndislega vinkonu sem bakar með mér yfir lönd og höf :)

Takk elskurnar mínar fyrir gæðin öll

Ragnheiður , 27.11.2011 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband