Og hvað

gerist þá næst ?

Hver er til hér á landi sem almenningur treystir til að kynna fyrir sér möguleikana ?

Hér er allt fullt af óánægjufylgi og radikölum...

og meira að segja rólyndisskepnur eins og ég geta ekki upphugsað nokkurn mann sem ég treysti til kynningarinnar.


mbl.is Þjóðin kýs að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Við getum ekki treyst á fjölmiðla - því miður - ég hef áður kallað eftir heiðarlegum hagfræðingum til þess að fara yfir málin á mannamáli. Pantaðar niðurstöður eru falskar - okkur vantar fagfólk sem segir satt. Mér er ljóst að hagfræðilega séð er hægt að komast að nokkrum niðurstöðum í stórum málum þar sem álitaefnin eru mörg. En það hlýtur að vera hægt að taka saman heildarmyndina og gefa þá upp nokkra mögulega framhaldsþræði.

Á meðan fjölmiðlar eru hlutdrægir og með vanhæfa fréttamenn er þeim ekki treystandi

Ólafur Ingi Hrólfsson, 21.2.2011 kl. 08:07

2 identicon

Það er með ólíkindum þegar fólk kallar eftir hlutlausum aðilum til að fara yfir kostina sem í stöðunni eru, það eru engir hlutlausir aðilar til á Íslandi hvað þessi mál snertir.

Þegar kallað er eftir því að almenningur komi í æ ríkari mæli að því að taka ákvarðanir í stórum málum í þjóðaratkvæðagreiðslu þíðir ekki að ætlast til þess að það séu einhverjir hlutlausir sérfræðingar sem eigi að segja fólkinu hvað það eigi að kjósa.

Nú þurfa stjórnmálamenn einmitt að koma fyrir þjóðina og skýra fyrir henni hvað réð þeirra afstöðu í málinu og þá væntanlega eftir atvikum sannfæra kjósendur um að gera hið sama.

júlíus (IP-tala skráð) 21.2.2011 kl. 08:23

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það eru engir hlutlausir aðilar segir þú Júlíus.  Ég held að það finnist slíkt fólk, það er bara að þekkja það úr.  Við vitum allavega að áhangendur stjórnmálaflokkanna segja bara það sem kemur þeirra flokkum best.  Enginn treystir þeim lengur.   En svo er hægt að lesa lærðar greinar, það er nefnilega til fólk meira að segja bloggarar sem hafa komið með tölur, súlurit og tilvitnanir sem segja söguna eins og hún er.  Það þarf bara að vera duglegur að lesa hlutlaust það sem kemur frá slíku fólki. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.2.2011 kl. 08:35

4 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Allra verst er ef illa grundaður almannarómur ræður úrslitunum. Ég er ekki alveg viss um að þjóðinni sé treystandi til að hafa síðasta orðið í þessum efnum og mörgum öðrum, af því það er svo auðvelt að slá ryki í augu hennar með lýðskrumi og ofeinföldun.

Sigurður Hreiðar, 22.2.2011 kl. 10:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband