Umferðarsektir með eða á móti ?

Í dag voru Frostrósatónleikar í Laugardalshöll. Nokkru eftir að þeir hófust þá birtust mótorhjólalögreglur og hófu að sekta þá sem höfðu lagt á grasinu og á stéttunum.

Ég sá að grasflatirnar höfðu sumsstaðar skemmst enda er svo blautt.

Um daginn bárust fréttir að þeir hefðu sektað nærri Fjölskylduhjálpinni meðan fólk beið í þessari löngu röð.

Hvað finnst fólki um þessar aðfarir ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég fór á jólagesti Björgvins, þar var bílum lagt upp á gras og ég sá ekki einn einasta sektarmiða

Álfhildur (IP-tala skráð) 11.12.2010 kl. 22:53

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Það fékk víst enginn sekt þegar Landsbankinn hélt sína árshátíð í Laugardalshöllinni í síðasta mánuði, samt var hringt í lögregluna og kvartað :) 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.12.2010 kl. 00:09

3 Smámynd: Ragnheiður

Þetta er kannski einhver ný stefna - að vera á tánum yfir að geta sektað. Auðvitað á fólk svosem ekki að leggja svona útum allt. En það er sama..

Ragnheiður , 12.12.2010 kl. 14:08

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Er þetta ekki bara kosningaloforð Besta flokksins að hafa meira líf í borginni ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.12.2010 kl. 14:14

5 identicon

Samkvæmt umferðarlögum er bannað að leggja upp á gangstétt, við lærðum það þegar við tókum bílpróf.

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 13.12.2010 kl. 11:33

6 Smámynd: Ragnheiður

Já Jóhanna það er óumdeilanlegt.

Ragnheiður , 13.12.2010 kl. 23:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband