blogg fyrir úrræðagóða

Hér eru nefnilega 2 spurningar.

Það dynja á okkur auglýsingar um orkusöluna.is og maður ráði hvað maður gerir við rafmagnið frá þeim. Getur maður skipt um fyrirtæki og losnað þannig við þessa miklu hækkun sem dynur yfir eftir rúman mánuð ?

Hitt er ; hver á bókina Eldfórnina eftir Vilborgu og vill láta hana ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kidda

Hækkunin þýðir tæpar 5þús á mánuði hjá okkur + hækkunina á láninu okkar. Ef ég get skipt um fyrirtæki þá mundi ég gera það án þess að hika, svo að vonandi svarar einhver hvort við getum skipt um fyrirtæki þar sem við verslum orkuna.

Sé mig í anda með svona námuljós við að prjóna í vetur eða við lestur. Svo er nú alltaf notalegt að notast við kertaljós á veturna. Lappinn hlaðinn í bílnum á keyrslu og klætt sig í hverja flíkina utan yfir aðra til að verma sér og spara heita vatnið. Sturta í 5 mín einu sinni í viku og fleiri góð ráð

Getum örugglega ef við getum ekki skipt um orkusala fundið mörg góð ráð til að hækkunin nái ekki til okkar nema í gegn um lánin okkar.

Knús og klús

Kidda, 28.8.2010 kl. 10:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband