og hvar eru

úrslitin ? Þetta er undarleg frétt - það vantar helling á þetta !

Rauðbröndótti töffarinn skilaði sér í gær. Hann og TumiTígur eru í einhverju skemmtilegu þessa dagana - báðir kolkrímóttir á nefinu.

Ég sé hinsvegar ekki hvort Rebbi er þannig , hann er með grátt nef hvort eð er .

Núna njótum við þess að hafa opið út. Í gær var steinefnabragð af öllu og í morgun líka. Þessu er spáð oftar í sumar og við verðum þá bara að þola það. Auðvitað er ástandið mikið verra fyrir austan en við hér kvörtum auðvitað líka. Sum okkar þola ekki svifryk í Reykjavík á slæmum degi. Ég er þó svo heppin að "vinnustaðurinn" er með nokkuð góðum síum - á móti kemur að það þarf alltaf að opna hurðir öðruhvoru ...

den tid - den sorg.

 


mbl.is Crossfit leikarnir í Kópavogi í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Reikna með að úrslitin verði birt hér: http://crossfitleikar.is/

Þar er einnig að finna rétta lýsingu á hvaða æfingar voru gerðar, en þessi frétt er algjörlega fyrir neðan allar hellur. Það er lágmark að fréttamenn kynni sér hlutina örlítið áður en þeir skrifa fréttir.

CrossFit-ari (IP-tala skráð) 5.6.2010 kl. 21:29

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Knús á þig yndið mitt, hér er askan stillt, allavega í bili og allt opið upp á gátt.

Ásdís Sigurðardóttir, 5.6.2010 kl. 21:32

3 Smámynd: Ragnheiður

takk CrossFit-ari - ég kíki á þetta :) - sammála þér með fréttina, alveg fyrir neðan allar hellur.

Yndislega Ásdís mín með spánnýtt eftirnafn. Hér er líka opið :)

Ragnheiður , 5.6.2010 kl. 21:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband