Veðurhræðsla

á til að grípa mig, nú bý ég á strönd og akkurat núna er þungur þytur í hafinu, þung aldan. Áðan gekk þrumuvedur yfir Grindavík. Spáð er roki.

Ég er ekki í stuði fyrir svona veðurfar, er upptekin af spennufalli og er enn í náttkjólnum. Engu breytir þó að um nýjan náttkjól sé að ræða. Athyglisbresturinn allsráðandi og minnið í náttborðsskúffunni. Ég á að vera að prjóna telpupeysu en það gengur hægt þar sem ég hef snúið baki í prjónana í morgun. Núna heillengi hefði ég þurft að skreppa afsíðis en hef ekki fundið orkuna til að standa upp. Keli horfir á mig, hann þarf líka út. Hann þraukar með að sofa.

Næst er að finna til mat fyrir kallana mína.

Það góða við minnisleysið er þó að ég mun ekki muna eftir þessum bömmer sem hefur hrjáð mig í dag !

Í dag hef ég helst glatt mig við að lesa blogg sem er skrifað á svo fallegri íslensku að ég er með viðvarandi gleði-gæsahúð. Mér leiðist þegar fólk kemur ekki .....nei ég ætla ekki að skrifa um það.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kidda

Sá eldinguna, þetta var engin smá þruma sem fylgdi með. Sá aðra bara rétt í þessu, þruman var minni en nær fannst mér. Er svo spáð roki í þokkabót,  er það annars algengt að það séu þrumuveur í janúar?

Já það er mjög oft gott að þjást af minnisleysi

Knús og klús

Kidda, 20.1.2010 kl. 17:58

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það spáir víst slæmu á morgun.  Vertu bara í náttkjólnum áfram ef þú mögulega getur og dekstraðu sjálfa þig dálítið. 

Anna Einarsdóttir, 20.1.2010 kl. 18:11

3 Smámynd: Ragnheiður

Ahh komin í föt, loksins..

svo þarf ég víst að vinna á morgun en hef ákveðið aðgera ekkert nema skjálfa á beinunum undan veðri í dag.

Takk elskurnar....

Ragnheiður , 20.1.2010 kl. 18:24

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ dúllan mín.  Ég varð vör við þetta veður síðustu nótt, átti erfitt með að sofna fyrir skrítnum verkjum og pirringi, ekki góð í dag heldur, en þetta gengur yfir eins og veðrið, kærleiksknús til þín

Ásdís Sigurðardóttir, 20.1.2010 kl. 18:28

5 identicon

Já Harpa er snilldarpenni, en hér er spáð stóra sunnan með mikilli rigningu á morgun, vildi gjarna geta lagst undir sæng en það er ekki í boði hér þarf að rétta af gólf í hrútakofa þeirra bræðra undir steypu og knúsa kall! En allar rigningar stytta upp í regnboganum -!Guð lofaði!

Kveðja í kotið...           

Fríða T (IP-tala skráð) 20.1.2010 kl. 19:18

6 Smámynd: Ragnheiður

Takk Ásdís mín

Fríða nú þarft þú að skýra fyrir mér, hvernig vissir þú að ég var að lesa hjá Hörpu ?

Ég er búin að lesa þessa færslu margsinnis og sé mig ekki minnast á hana en þar var ég að lesa...er eitthvað yfirnáttúrulegt í gangi ?

Kær kveðja kæra vinkona

Ragnheiður , 20.1.2010 kl. 20:03

7 identicon

Þú ert ekki sú eina sem lest Hörpu! Annars er hún skólasystir mín auk þess að vera náskyld Benna stjúpa.

Fríða T (IP-tala skráð) 21.1.2010 kl. 11:58

8 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Vonandi áttu betri dag í dag elsku Ragnheidur....Taktu tér samt tíma elskuleg  og svo er bara ad treysta á sjálfann sig ,gud og samferdarmenn.

Stórt knús frá mér

Gudrún Hauksdótttir, 21.1.2010 kl. 13:18

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ragnheiður mín, dragðu tjöldin fyrir gluggan, settur eitthvað fallegt á fónin, kveiktu á kerti og njóttu þess að vera inni með kettina og fallegar minningar, knús á þig elskleg mín, það er ótrúlegt hvað hægt er að gera lífið kósí bara ef maður vill sjálfur og gerir réttu hlutina. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.1.2010 kl. 16:53

10 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 21.1.2010 kl. 22:29

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hver er Harpa?

Hrönn Sigurðardóttir, 21.1.2010 kl. 23:05

12 Smámynd: Ragnheiður

Takk fyrir ykkar endalausa hlýhug...

Fríða þú drepur mig einn daginn, þú þarna atvinnunjósnari...

Harpa er kennari sem bloggar. Mér finnst ómetanlegt að lesa hennar blogg en hef ekki gert það lengi núna.

Ragnheiður , 22.1.2010 kl. 15:11

13 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hæ hæ

Ég ætlaði að senda þér skilaboð (svar) en sama hvað ég reyndi, það fór bara ekki frá mér.  Svarið er já, ekki málið.  Geri allt fyrir þig.  Segðu mér bara hvað ég á að gera. 

Anna Einarsdóttir, 24.1.2010 kl. 19:20

14 identicon

'Eg stefni nú á heimsókn á árinu svo láttu þér ekki bregða! Hitt flokka ég bara undir tilviljun!

Fríða T (IP-tala skráð) 24.1.2010 kl. 19:47

15 Smámynd: Ragnheiður

Takk elsku Anna

Sko Fríða æfinlega velkomin mín kæra vinkona, alltaf gaman að sjá þig

Ragnheiður , 25.1.2010 kl. 22:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband